Skagfirðingabók - 01.01.1985, Side 182
SKAGFIRÐINGABÓK
sumarið 1922, en um haustið hélt ég norður á fund Sigurðar.
Hann sagði mér til, ég ferðaðist með honum og fylgdist með,
las, og var heima hjá honum. Sigurður var ágætur kennari, og ég
lærði mikið þessa mánuði, sem ég dvaldist hjá honum. Ometan-
legan stuðning hafði ég af kennslu Páls Zophóníassonar, en
hann hafði leiðbeint mér í húsdýralíffræði og lagt til grundvallar
bók J. Jespersens. Það var mín fræðilega biblía.
Þessari námsdvöl minni á Akureyri lauk fyrir jól árið 1922,
og þá var ég orðinn fjárvana, komst ekki vestur og hringdi þá í
Pál skólastjóra, sem lánaði mér 100 krónur og sendi símleiðis.
Eg fór með trillu til Dalvíkur, gekk upp Svarfaðardal, yfir
Heljardalsheiði og heim á Krók. Þar sótti ég um farkennara-
embætti á Skaga frá áramótum til vors; tveir menn aðrir sóttu
um kennsluna. Hreppsnefnd og sóknarprestur veittu stöðuna,
og hlaut ég upphefðina. Síðar frétti ég, að sr. Arnór í Hvammi
hefði lagt til að ég hlyti stöðuna og sagt: „Eigum við ekki að láta
greyið hann Gvend hafa þetta?“ Og þarna kenndi ég til vors
1923. Sumarið eftir var ég á Siglufirði og hafði umsjón með
matarfélagi Gránufélagsins. Haustið 1923 réðst ég síðan kennari
til Sauðárkróks og kenndi yngstu krökkunum móti Jens P.
Erikssen. Auk þess las ég heima með börnum Michelsens og
Ogmundar Magnússonar, skauzt heim til þeirra dagparta.
Næsta sumar var ég síðan á Siglufirði og annaðist kostfélag
Sörens Gos í Hvanneyrarkrók. Þá var líflegt á Siglufirði og nóg
að gera.
Vorið 1926 hélt ég suður á land og gerðist kúabússtjóri hjá
Thor Jensen á Korpúlfsstöðum um 7 mánaða skeið. Tildrög
þess voru þau, að Kristinn Guðmundsson plægingamaður á
Hólum, sem síðar bjó í Mosfellssveit, hafði verið beðinn að
útvega búfræðing til að hafa umsjón með mjólkurbúinu. Krist-
inn starfaði einnig við búið, plægði og heyjaði. A Korpúlfsstöð-
um voru yfir 200 kýr, og í minni þjónustu voru 17 stúlkur til
mjalta og umhugsunar í mjólkurskála. Mjólkin var síðan mæld í
málmdunka stóra og smáa og seld niðri í Reykjavík. Tveir
180