Skagfirðingabók - 01.01.1985, Qupperneq 145
GUÐMUNDUR GÓÐI OG KOLBEINN TUMASON
breyta. Libertas ecclesiae var vígorð hinnar nýju stefnu. A
íslenzku heita þessi orð frelsi kirkjunni til handa, og er þá átt
við, að kirkjan eigi að verða óháð hinu veraldlega valdi. En það
skipti miklu máli, hvernig kirkjan vann að því að ná þessu
markmiði. Með því að stofna til ástands, sem líkist einna helzt
borgarastyrjöld, eins og Guðmundur Arason gerir, var ekki
verið að vinna í þágu þjóðar né heldur í þágu kristni. Biskups-
dómur hans verður að teljast slys í sögu íslenzku þjóðarinnar,
þótt ekki megi gleyma því, að Guðmundur Arason var vissu-
lega frambærilegur sem prestur og dýrlingsefni.
TILVITNANIR
1) Sturlungasaga. I —II. Jón Jóhannesson, Magnús Finnbogason og
Kristján Eldjárn sáu um útgáfuna. Reykjavík 1946. I, 243.
2) Sama heim. I, 248.
3) Guðmundarsaga A er til í alveg nýrri útgáfu: Guðmundar sögur
biskups I, Ævi Guðmundar biskups, Guðmundar saga A. Stefán
Karlsson bjó til prentunar. Kaupmannahöfn 1983. Editiones Arna-
magnæane. Series B, vol. 6. Utgefandi hefur skrifað langan og ýtar-
legan formála, sem hér er stuðzt við.
4) Biskupa sögur, gefnar út af Elinu íslenzka bókmenntafélagi. I —II.
Kaupmannahöfn, 1858 — 1878. Sbr. formála.
5) Sturlungasaga, tilv. útg. I, bls. 245 og 587.
6) Elér er stuðzt við nýja útgáfu á Pálssögu: Byskupa sögur, 2. hæfte;
udgivet af Jón Helgason. Köbenhavn, 1978. Editiones Arnamagnæ-
ane. Series A, vol. 13,2. Bls. 427—430.
7) Texti Pálssögu hefur ekki varðveitzt óskemmdur. Hér virðist vanta
orð, t. d. fremur á eftir vildi.
8) Útgefandi Pálssögu, Jón Helgason, telur, að hér geti komið rétt
merking í setninguna, ef sett er inn orðið víti á eftir nokknd. Til
öryggis sínum mönnum vill Páll biskup leggja einhverja væga refsingu
á þá, svo að þeir þurfi ekki að óttast um sáluheill sína eftir dauðann,
þótt Guðmundur hafi bannfært þá. Tilv. útg., bls 428, neðanmálsgrein
nr. 26.
9) Texti sögunnar hefur brenglazt hér. Merkingin er sú, að það var
auðséð á hvoru tveggja, letjuorði, úrtölum, Páls biskups gagnvart því
að sá kostur yrði fyrir valinu, að höfðingjar færu norður til Hóla með
143