Skagfirðingabók - 01.01.1985, Blaðsíða 177
MINNINGABROT
eftir GUÐMUND ANDRÉSSON, dýralækni
Ég fæddist 6. júní 1895 á Gauksstöðum á Skaga. Faðir minn
var Andrés Pétursson, sem víða bjó í Skagafirði, Jónssonar
prests í Vesturhópshólum, Mikaelssonar, og Lilju Gottskálks-
dóttur bónda á Syðra-Mallandi, Eiríkssonar, en Lilja var alsyst-
ir Jóns Skagamannaskálds. Móðir mín var eyfirzkra ætta, Krist-
jana Jónsdóttir. Foreldrar hennar voru Jón Þorvaldsson og
Hallfríður Olafsdóttir, er lengi voru vinnuhjú á Steindyrum í
Svarfaðardal.
Ég átti 7 alsystkini og einn hálfbróður, sem ég heiti eftir. Ég
sá hann aldrei, og er saga til þess: Pabbi var í hákarlalegu frá
Akureyri, en kærasta hans var í bænum með drenginn nýfædd-
an. Þegar pabbi kom í land, var stúlkan farin til Ameríku með
barnið. Síðar fór Margrét systir mín vestur um haf, aðeins 8 ára,
og hefur hún aldrei komið upp síðan. Þrjú systkini mín voru
yngri en ég, Jón, Haraldur og Þorsteinn, en fjögur eldri,
Hjörleifur, Gunnhildur, Pétur og Margrét. Það var því þröngt í
búi foreldra minna.
Ég ólst upp hjá vandalausum á átta bæjum til fermingar, en þá
var ég 14 ára, Skíðastöðum, Sævarlandi, Gauksstöðum, Fossi,
Kleif, Hvammkoti og Fjalli á Skagaströnd; man ekki hinn
áttunda. Líklega hef ég notið víðlíka atlætis og þá var títt, og
175