Skagfirðingabók - 01.01.1985, Side 189
FRÁ BJARNA PÉTURSSYNI OG FLEIRU
eftir LILJU SIGURÐARDÓTTUR í Ásgarði
RlTGERÐ pá, er hér fer eftir, samdi Lilja Sigurðardóttir í Ásgarði
eftir frásögn móður sinnar, Guðrúnar Pétursdóttur húsfreyju á
Víðivöllum. Mun Lilja hafa skrifað þetta að tilhlutan Stefáns Jóns-
sonar fræðimanns á Höskuldsstöðum, því honum sendi hún frá-
sögnina og fylgdi henni stutt bréf, dagsett í Reykjavík 18. desember
1957. Barst hún til Héraðsskjalasafns Skagfirðinga með bréfa- og
handritasafni Stefáns að honum látnum.
Lilja var fædd 26. febrúar 1884, tvíburasystir Gísla bónda á
Víðivöllum, og lézt hinn 24. marz 1970. Hún var rausnarkona
mikil, hæfileikarík og héraðskunn, einkanlega fyrir störf sín að
garðyrkju og skógrækt. Sumarið 1947 hóf hún byggingu á nýbýlinu
Ásgarði úr landi Víðivalla, reisti þar stórhýsi, sem hún hafði sjálf
teiknað, og er það táknrænt minnismerki um stórhug hennar.
Lilja gekk að sjálfsögðu ekki frá þessari grein til útgáfu. Frá
hennar hendi var þetta aðeins uppskrift til kunningja, en útgefend-
um þótti hún girnileg og eiga erindi á prent. Orðalag er nánast allt
óbreytt frá hendi höfundar, en greinarmerki og stafsetning sam-
ræmd að hætti Skagfirðingabókar. Neðanmálsgreinar eru allar út-
gefandans.
Hj. P.
Móðir mín var fædd á Reykjum í Tungusveit 29. september
1852. Fíöfðu foreldrar hennar, Pétur Bjarnason og Guðrún
Pétursdóttir, flutt þangað það ár frá Reykjum á Reykjaströnd,
en þar voru öll systkini hennar fædd og voru þau, er þau
fluttust fram að Reykjum, Sigríður 15 ára, Pétur 12 ára, Björg 4
ára og Bjarni 2 ára.
Á Reykjum á Reykjaströnd stundaði afi minn sjómennsku af
miklum dugnaði, en þoldi með aldrinum illa sjóinn og tók því
þann kostinn að flytja burt frá honum, því væri hann í návist
187