Skagfirðingabók - 01.01.1989, Blaðsíða 134
SKAGFIRÐINGABÓK
útgerðarmenn. Ekki kemur þó fram við virðingu húsa í
Arnarneshreppi 1884, að þessir útlendingar eigi hús í Hrísey
að einum undanteknum. Þá bregður svo undarlega við, að
hvorki finnst í veðmálabókum Skagafjarðarsýslu né Eyja-
fjarðarsýslu nokkur stafur um sölu hússins til Hóla. Einu
upplýsingarnar um húseign Eggerts Laxdals í Hrísey á
þessu tímabili er að finna í hreppsbókum Arnarneshrepps.
Þar er getið um virðingu, sem fram fór dagana 21. og 22.
apríl 1884 á húsum í hreppnum (væntanlega timburhúsum).
Þar segir svo:
Salthús verzlunarstjóra E. Laxdals, sem stendur á
Syðstabæ í Hrísey. Húsið á lengd 25 álnir, breidd 14,
hæð undir þak 314 alin, með pappaþaki og eins á hlið-
um, með loft og gólf, einu verelsi í öðrum enda á lofti,
einum glugga á stafni. Húsið virt á 2.500 kr.
Naumast er þetta sama húsið og Eggert auglýsir til sölu
fimm árum seinna. Grunnmálið er ekki eins, þótt litlu muni.
Salthúsið er 25x14 álnir, en húsið sem selt var í Hóla 24x16
álnir. Salthúsið er klætt pappa, bæði þak og að utan. Um
hitt er tekið fram, að pappi sé einungis á þaki. Talað er um
eitt loft í salthúsinu, hitt er tvílofta o.s.frv. Ekki er útilokað,
að Eggert hafi síðar sett efra loftið á húsið eða gert jafnvel
aðrar breytingar á því. Þó verður að telja líklegast, að hann
hafi byggt margnefnt hús eftir að þessi virðing fór fram, þ.e.
á árunum 1884-89.
Margt hefur gerzt í sambandi við gamla skólahúsið, innan
veggja þess og utan. Ungir menn flykktust „heim að Hól-
um“ til náms og starfa, og ungar heimasætur úr öllum
landsfjórðungum sóttu þangað sem kaupakonur eða vetrar-
stúlkur. Þarna tókust oft haldgóð kynni og bönd voru
bundin, sem entust ævilangt, enda oft á orði haft: „Þau
kynntust á Hólum“ eða „hún náði í hann á Hólum - hann
náði í hana á Hólum.“ Þessum þáttum verða þó engin skil
130