Skagfirðingabók - 01.01.1989, Blaðsíða 181
SKAÐAVEÐUR HAUSTIÐ 1943
Þá kem ég að skýrslunni úr Lýtingsstaðahreppi. Þar urðu
fjárskaðar langmestir eða 911 fjár af 1557 á heildarskýrslu,
457 ær og 454 lömb. Fjárskaðar urðu á 38 bæjum og hey-
skaðar á 18 bæjum. Fé fennti á öllum bæjum í Vesturdal
nema Giljum og Þorljótsstöðum, en Þorljótsstaðir munu þá
hafa verið í eyði, en jörðin nytjuð frá Giljum. A Irafelli og
Breiðargerði urðu ekki fjárskaðar, en á öllum öðrum bæjum
í Goðdalasókn. I Breiðargerði urðu úti 75 hestar af heyi.
Einhver slembilukka réði því, að ekki varð úti hey á
Sveinsstöðum, en 30 kindur fennti þar, og voru þær á
tveimur stöðum, í Grófarskurði fyrir neðan veg, þar sem
hann liggur nú, og í lækjardragi uppi í ásnum, beint upp frá
bænum.
Á Þorsteinsstöðum, Merkigarði og Steinsstöðum urðu
ekki hey- eða fjárskaðar og ekki á Hvíteyrum. Heyskaðar
voru mestir á Álfgeirsvöllum og Ánastöðum, 80 hestar á
hvorum bæ. Á öðrum bæjum eru heyskaðar 15 til 50 hestar.
Heyskaðar í hreppnum eru alls skráðir 695 hestar, og er það
ekki nema brot á móti heyskaða Akrahrepps, en fjárskaðar í
Akrahreppi voru heldur ekki nema brot á móti því sem
fennti í Lýtingsstaðahreppi, eða 288 kindur.
Fjárskaðar urðu mestir í Brekkukoti 60 kindur, Mælifellsá
53 kindur, Héraðsdal 46 kindur, Mælifelli 40 kindur, Ytra-
Vatni 36 kindur, og víða annars staðar fóru 20 til 30 kindur
á bæ. Minnstur skaði var í Efrakoti, 5 kindur.
Bændur á Neðribyggð sluppu vel. Hjá þeim eru ekki
skráðir hey- eða fjárskaðar, en þar eru þessir bæir: Brenni-
borg, Saurbær, Daufá, Reykjavellir, Reykjaborg, Skíðastað-
ir og Gilkot. Þó kann að vera, að eitthvað af kindum hafi
farizt á þessum bæjum, en verið svo fátt, að ekki hafi þótt
taka því að telja það.
Vitað var, að margt fé fennti, sem kom úr Stafnsrétt, en
Neðribyggðarbændur sluppu vel frá því. Þeir voru í dilksfé-
lagi við Stafnsrétt. Fénu að vestan var sleppt í afgirt hólf
12 Skagfirdingabók
177