Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Síða 101
um kynlíf heldur ofbeldi. Með því að undirstrika þennan greinarmun, má
svipta hulunni af kynferðislegu ofbeldi, að hennar mati. Að lokum áréttar
Fortune að mjög hafi skort á að guðfræðin og siðfræðin hafi axlað ábyrgð og
tekið kynferðislegt ofbeldi til gagnrýnnar umræðu í þágu kirkjunnar og alls
starfs hennar. Guðfræðin og siðfræðin hafi þar með brugðist kirkjunni með
því að benda ekki á hið augljósa: Að kynferðislegt ofbeldi sé synd.8 Með því
að leita ekki réttlætis fyrir fórnarlömb kynferðisofbeldis og krefja gerendur
þess ekki um iðrun, yfirbót og ábyrgð hafi guðfræðin stutt kirkjuna í því
að ganga firam hjá hinum særða við vegkantinn, rétt eins og segir í frásögu
Lúkasar guðspjallamanns af prestinum og Levítanum (Lúk. 10.25-37).
Niðurstaða Fortune er að kirkjunni beri að fylgja orðum Jesú og gerast
hinn miskunnsami Samverji sem staldri við og verji kröftum sínum til þess
að hjálpa þeim sem ráðist hefur verið á. Kirkjunni ber að standa vörð um
fórnarlambið og leita réttlætis fyrir það.9
Rúmlega tuttugu árum síðar, í nýrri og endurbættri bók frá árinu 2005,
Sexual Violence. The Sin Revisited10 tekur Fortune upp þráðinn að nýju og
segir tíma til kominn að endurskoða og endurmeta stöðu þessa málaflokks
innan kristinna kirkna og bæta við þeirri reynslu sem hún hafi öðlast
eftir áratuga starf á sviðinu. Við lestur á báðum þessum bókum Fortune
leika hugtökin réttUti og synd lykilhlutverk. Markmið þessarar greinar er
varpa skýrara ljósi á merkingu þessara hugtaka hjá Fortune í tengslum við
kynferðislegt ofbeldi. I því augnamiði verður spurt eftirfarandi spurninga:
Hvað merkir það guðfræðilega og siðfræðilega að kynferðislegt ofbeldi sé
synd? Hvað felst í ábyrgum og réttlátum viðbrögðum samfélags og kirkju
við kynferðislegu ofbeldi? Og að lokum, er fyrirgefning nauðsynlegur þáttur
í bata þolenda kynferðislegs ofbeldis? Það er von höfundar þessarar greinar
að guðfræðilegt og siðfræðilegt framlag Fortune um þetta efini geti nýst í
íslensku samhengi þar sem unnið er að því um þessar mundir að efla og
bæta viðbrögð íslensku þjóðkirkjunnar við kynferðislegu ofbeldi.
Kynferðislegt ofbeldi er synd!
Líklega er hinn siðfræðilegi orðaforði og hugtakaheimur sá sem flestir þekkja
og tengja kynferðislegu ofbeldi. Orð eins og rétt og rangt, gott og illt eru
þar trúlega algengust. En hver er aðkoma guðfræðinnar að kynferðislegu
8 Fortune, Marie M. 1983. Sexual Violence, bls.xi-xiv.
9 Þetta er í hnotskurn meginþema og kenning beggja bóka Marie Fortune um kynferðislegt ofbeldi.
10 Fortune, Marie M. 2005. Sexual Violence. The Sin Revisited. Cleveland, Ohio, The Pilgrim Press.
99