Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 145
sömu spurninga og leitar að svörum og lausnum í samræmi við gáfur sínar
og skaplyndi. Og drengurinn Hallgrímur er enginn engill heldur. Hann er
oft skapillur og getur verið langrækinn.
Heimanfylgja skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn nefnist „Drengurinn
í GröP og lýsir bernsku Hallgríms. I Gröf átti Hallgrímur heimili þar
til hann var átta ára að hann flutti með föður sínum heim að Hólum.
Astæða þess að Pétur fluttist frá Gröf til Hóla og gerðist hringjari þar er
ekki kunn en Steinunn gefur sér að það tengist arfsmálum. I Gröf hafði
Pétur búið ásamt konu sinni og börnum í skjóli foreldra sinna en við
fráfall föður hans, Guðmundar Hallgrímssonar, föðurbróður Guðbrands
biskups, sem líka var eigandi jarðarinnar í Gröf, tók bróðir Péturs,
Hallgrímur frá Enni, við búsforráðum í Gröf en Guðbrandur útvegaði
frænda sínum Pétri stöðu hringjara á Hólum. Heimildum ber saman um
að Pétur hafi verið lítt hneigður til búskapar og því hafi Guðbrandi litist
betur á að byggja bróður hans Hallgrími Gröf. Við flutninginn til Hóla
varð Hallgrímur áhorfandi að margvíslegum viðburðum sem settu mark
sitt á öldina og tók sumpart þátt í sumum þeirra. Frá því greinir síðari
hluti sögunnar sem nefnist Hólastrákur. Sá hluti skiptist í tvo kafla og
heitir sá fyrri „Undir vængbroddum Guðbrands“. Lýsingarnar á Hólastað
eru mjög lifandi og styðjast bæði við skriflegar heimildir og fornleifa-
rannsóknir þær er hófust árið 2001. Prenthúsið hefur mest aðdráttarafl.
Starfsemin sem þar fór fram var spennandi ungum dreng sem hafði
mikinn áhuga á bókum og ekki spillti fyrir hlýjan þar inni en kakelofninn
græni, sem fornleifarannsóknin hefur upplýst um, leikur mikið hlutverk
í lífi Hallgríms.
Lífið á Hólum breyttist við það að Guðbrandur fékk slag og lagðist í
kör árið 1624. Þá tók við búsforráðum dóttir Guðbrands, Halldóra og
síðari kaflinn um Hólastrákinn nefnist „Hjá Halldóru Hólafrú.“ Þar er
mjög skemmtileg lýsing á Halldóru, ekki síst af viðskiptum hennar við mág
sinn Ara Magnússon sýslumann í Ogri, sem henni tókst að gera útlægan af
staðnum. Frásagan af fárviðrinu þegar dómkirkjan á Hólum fauk er mjög
lifandi og vel lýst frá sjónarhorni ungs drengs. Hallgrímur er látinn taka
þátt í að bjarga gripum og viðum kirkjunnar og lýsingin af aðdráttum til
kirkjubyggingarinnar og kirkjubyggingunni sjálfri, sem Hallgrímur tók líka
þátt í, er mjög heillandi. I lok sögunnar er Hallgrímur orðinn skólastrákur
á Hólum og baksar við latínulærdóminn. Kirkjubyggingunni er lokið og
útför Guðbrands fer fram frá nývígðri Halldórukirkju 1627. Heimildir um
143