Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Qupperneq 102
ofbeldi? Hvaða orð og hugtök notar sú fræðigrein til þess að lýsa því sem
kynferðislegt ofbeldi orsakar í lífi manneskju sem fyrir því verður?" Fortune
velur að styðjast við hið klassíska, guðfræðilega hugtak synd. Hvers eðlis
er þá synd kynferðislegs ofbeldis, að hennar mati? Svar Fortune við þeirri
spurningu er þríþætt og varðar manneskjuna sem persónu, tengsl hennar
við aðra og að lokum hið samfélagslega svið.
Ef við byrjum á fyrsta atriðinu sem varðar hið persónulega svið þá er
kynferðislegt ofbeldi synd vegna þess að það brýtur gegn persónulegum
mörkum og frelsi manneskjunnar til að ráða yfir eigin líkama og gjörðum.
Sá sem það fremur óvirðir persónuna sem fyrir því verður með því að hlut-
gera hana og meðhöndla hana ekki lengur sem persónu með eigin vilja.12
Þannig skapar kynferðislegt ofbeldi fórnarlamb úr þeirri manneskju sem
fyrir því verður því persónan er svipt valdi til að ráða yfir sjálfri sér og eigin
líkama. Að lokum, segir Marie Fortune, er kynferðislegt ofbeldi gjörningur
sem afskræmir og misnotar kynverund persónunnar.13
Um annað atriðið, hina tengslalegu vídd, segir Fortune aðeins eitt og það
er að kynferðislegt ofbeldi sé synd þar sem eigi sér stað svik, því það traust
sem áður ríkti milli persóna sé að engu gert.14 Hvað varðar þriðja atriðið þar
sem samfélagið kom inn í myndina, bendir hún á að kynferðislegt ofbeldi
sé synd í þeirri merkingu að slíkt þrífist einungis í umhverfi þar sem ríki
andrúmsloft kynjahyggju, kynþáttahyggju eða gagnkynhneigðarhyggju. í
samfélögum þar sem slík viðhorf fái þrifist séu konur og börn ekki óhult.
Slík viðhorf hafi samfélaglega slæm áhrif á öll félagsleg tengsl manna, hvort
sem það sé innan fjölskyldu, milli vina, samstarfsmanna eða kunningja.15
Að endingu undirstrikar Fortune að í öllum tengslum fólks þar sem ekki
ríki valdajafnvægi, svo sem milli foreldra og barns, kennara og nemanda,
prests og sóknarbarns, megi finna enn aðrar víddir kynferðislegs ofbeldis.
Hún nefnir fjögur atriði: Þá synd að fullorðnir brjóti gegn barni með því
að vernda það ekki eða stuðla ekki að velferð þess, að fullorðnir misbeiti
11 Fjölmargir kvenguðfræðingar hafa notað orðið synd til þess að tjá þann veruleika sem skapast við
kynferðislegt ofbeldi. Ein þeirra er Toinette M. Eugene í grein sem kallast „Swing Low, Sweet
Chariot!“ og birtist í bókinni Violence Against Women and Children: A Chrístian Theological
Sourcebook. (ritstj. Carol Adams og Marie M. Fortune) 1995, bls. 185-200.
12 Hér bergmála svo ekki verður um villst siðfræðileg stef eins þekktasta heimspekings Vesturlanda,
Immanuel Kants.
13 Fortune, Marie M. 2005. Sexual Violence, bls.67.
14 Fortune, Marie M. 2005. Sama rit, bls.67.
15 Fortune, Marie M. 2005. Sama rit, bls.68.