Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 104
því sem er forsenda sjálfræðis og siðferðis eiga rétt á miskabótum í einhverri
mynd, táknrænum eða efnislegum. Samfélagið þarf að stuðla að því að þeir
geti byggt sig upp að nýju svo þeir geti tekið virkan þátt í samfélaginu.
Abyrg og réttlát viðbrögð við kynferðislegu ofbeldi
í kaflanum hér að framan hef ég þegar komið inn á aðalatriði þessarar
greinar sem varðar viðbrögð samfélags og einstaklinga við synd kynferðis-
legt ofbeldis. Með áframhaldandi tilvísun til guðfræðilegrar túlkunar Marie
Fortune hyggst ég nú beina sjónum að hinu kirkjulega samhengi sérstaklega
og þeim viðbrögðum sem þar þurfa að eiga sér stað, að hennar hyggju.
Sú spurning sem sjónum verður beint að í framhaldi þessarar greinar
er eftirfarandi: Hvernig md vinna að því að skapa réttlœti Jyrir þolendur
kynferðislegs ofbeldis í sálgœslu kirkjunnar? Kjarnaatriði til að skilja svarið
við þeirri spurningu felst í þeirri merkingu sem Fortune leggur í hugtakið
réttlæti. Réttlætishugtakið almennt talað er mjög víðfeðmt og oft er flókin
heimspekileg umræða tengd því, en hjá Fortune fjallar það um að skilja það
þeim skilningi sem fórnarlömb leggja í það. Réttlæti í samhengi þessarar
greinar byggir því á reynslu þolenda kynferðislegs ofbeldis. Sé grannt hlustað
á þolendur kynferðislegs ofbeldis, segir Fortune, má glöggt heyra hversu
upplifun af einhvers konar réttlæti er mikilvægur hluti af bataferli þeirra.
Þetta réttlæti er í brennidepli allrar umræðu Fortune um ábyrg og réttlát
viðbrögð við kynferðislegu ofbeldi.18
Fortune sækir guðfræðilega undirstöðu varðandi það hvað séu ábyrg og
réttlát viðbrögð gagnvart fórnarlömbum kynferðislegs ofbeldis til frásagna
Biblíunnar, einkum til frásagna Nýja testamentisins um framkomu Jesú
gagnvart samferðarfólki sínu. Hún tekur þessar frásagnir og umbreytir
þeim og færir þær inn á svið þess veruleika sem kynferðislegt ofbeldi er.
Frásögn Lúkasarguðspjalls af miskunnsama Samverjanum leikur aðalhlut-
verk í textatúlkun hennar (Lúk 10:29-37) en hún vísar einnig til fleiri
texta, svo sem til sögunnar um Sakkeus. (sbr. Lúk 19.1 - 10). Þar bætir
hún við syndalista hans að hann sé einnig sekur um að áreita verkafólk sitt
kynferðislega og segir: Til þessa manns kom Jesús til „að leita að hinu týnda
og frelsa það“ Einnig bendir hún á dæmisöguna um að biðja og þreytast eigi
í Lúk 18.1-8. Þar er talað um ekkju sem grátbiður dómara um að hjálpa sér
að ná rétti sínum gagnvart mótstöðumanni sínum. Þennan mótstöðumann
18 Fortune, Marie M. 2005. Sexual Violence, bls.124—128.
102