Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Page 52

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Page 52
51 sem eru hvorki hrekjanlegar né vel studdar af reynslunni, við munum sjá dæmi um slíkar kenningar síðar í þessari grein. Í öðru lagi er til urmull af kenningum sem eru bæði hrekjanlegar og vel studdar af reynslunni en eru ekki vísindalegar. Engum dytti í hug að kalla kenningu mína um að ég sitji nú við skriftir „vísindalega“. Samt er hún afsannanleg, mig gæti verið að dreyma. Hún er líka vel studd af reynslunni, ýmsir geta borið vitni um að ég sé nú staddur á vinnustað mínum. Kuhn vildi leysa vandann með því að höggva á Gordíonshnútinn. Hann talaði eins og það þjóni engum tilgangi að leita að almennum mælikvarða á góð vísindi, leita að hinum heilaga kaleik aðferðarinnar.8 Meira vit sé því að gaumgæfa sögu vísindanna en meinta aðferð þeirra. En ekki með því að gefa vísindaheimspeki upp á bátinn heldur með því að samtvinna vísindasögu og –heimspeki. Enda sé ekki hægt að greina sögulega lýsingu á vísindum skarplega frá forskriftum fyrir góð vísindi. Lýsingar og for- skriftir séu á ýmsum sviðum samofnar. Kuhn láist að útskýra hvers vegna en nefnir að Wittgensteinssinnaðir heimspekingar segi að lýsingar og for- skriftir séu oft samtvinnaðar.9 Ekki í fyrsta og heldur ekki síðasta skiptið sem Kuhn rökstyður ekki almennilega staðhæfingar sínar. Nefna má að John Searle (sem er undir áhrifum frá Wittgenstein) sagði að af lýsingu á röklegri afleiðslu megi draga þá ályktun röklega að hún sé gild rök- leiðsla en „gild“ sé matsyrði. Af raunhæfingum um rökleiðslu megi leiða dæmandi yrðingar um gæði rökleiðslunnar. Það verði ekki bæði sleppt og haldið, sé það satt að X sé gild rökfærsla þá sé hún þar með réttmæt og góð rökfærsla. Að kalla rökfærsluna „góða og réttmæta“ sé að meta hana, dæma um gæði hennar.10 Kuhn virðist hugsa með líkum hætti, söguleg lýsing á vísindakenningum verður ekki skarplega aðgreind frá dómum um gæði kenninganna. Kuhn heldur því fram að nánari athugun sýni að vísindasagan sé nán- ast fölsuð, alla vega gróflega einfölduð. Búin hafi verið til fegruð mynd af vísindunum sem sýni hugumstóra andans menn ganga frjálslega til móts við ljósið, ljós sannleikans. Með öðrum orðum þá sýnir myndin hodology of Scientific Research Programs“, Criticism and the Growth of Knowledge, ritstj. imre Lakatos og Alan Musgrave, Cambridge: Cambridge University Press, 1970, bls. 91–197. 8 Hann segir þetta ekki beinum orðum en gæti hafa gert það. 9 Thomas Kuhn, The Structure of Scientific Revolutions, 2. útgáfa, Chicago: Chicago University Press, 1970, bls. 207, Thomas Kuhn, Vísindabyltingar, bls. 397. 10 John Searle, Speech Acts. An Esssay on the Philosophy of Language. Cambridge: Cam- bridge University Press, 1969, bls. 133–134. ViðTöK OG VÍSiNDi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.