Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Qupperneq 98
97
opinni vegna þess að hún gerir ráð fyrir forspármöguleikum skrifanna,
sem geta kallað fram framtíðarsýnir, mótsagnir og afturhvörf. Hún er ekki
síður með hið táknræna hlutverk Sihanouks sem sameiningarafls í huga.
Þegar friði var loks komið á í Kambódíu árið 1993 kom engum á óvart að
Sihanouk skyldi þar hafa gegnt lykilhlutverki. Sama ár var hann krýndur
konungur og endurheimti titil sem hann fékk fyrst frá Frökkum árið 1941.
Þannig var bundinn táknrænn endir á áratuga langa baráttu milli fulltrúa
smáþjóðar við volduga nágranna og stórveldi.68 Leikrit Cixous fjallar um
óbilandi lífseiglu, en einnig um fallvelti og hverfulleik valdsins, sem blind-
ar mönnum sýn og leiðir til harmleikja.
Ú T D R Á T T U R
Stjórnmál minninga. Hélène Cixous um Sihanouk, konung Kambódíu
Í greininni er sjónum beint að hinu pólitíska í harmleik Hélène Cixous L’Histoire
terrible mais inachevée de Norodom Sihanouk, roi du Cambodge (Hræðileg en ólokin
saga Norodom Sihanouks, konungs Kambódíu) með áherslu á samspil sögu og
minnis. Túlka má leikritið sem siðferðilega og pólitíska dæmisögu, þar sem Sih-
anouk konungur birtist sem hlekkurinn milli fortíðar og nútíma í sjálfstæðisbar-
áttu Kambódíumanna. Cixous greinir þessa sögu gegnum minningar hópa, eins og
Kambódíumanna, Víetnama, Kínverja og Bandaríkjamanna, og setur hana í víðara
sögulegt samhengi með skírskotun til nýlendustefnu, Víetnamstríðsins og kalda
stríðsins. Færð eru rök fyrir því að líkja megi sagnfræðilegri og skáldlegri túlkun
Cixous við það sem sagnfræðingurinn Susan Crane kallar „upplifun“ og þjónar þeim
tilgangi að brúa bilið milli sögu og minnis. Markmið Cixous er ekki að setja saman
texta með því að raða saman sögu- og minningabrotum um Kambódíu í snyrtilegri
tímaröð og hún hafnar ekki „sannleiksleit“ í nafni sameiginlegra minninga og sjálfs-
myndastjórnmála svo framarlega sem hún sé gerð í nafni „mismunar“. Hugtök-
unum „sögu“ og „minni“ er ekki teflt fram sem andstæðum heldur er lögð áhersla
á skyldleika og víxlverkun þeirra. Þannig má túlka skrif Cixous um brostnar vonir
Kambódíu sem sögulega reynslu sem verður hluti af sameiginlegu minni.
Lykilorð: Hélène Cixous, Sólarleikhúsið, saga og minni, Sihanouk, Kambódía
68 Bernadette Fort, „Theater, History, Ethics“, bls. 425–456.
STJÓRNMÁL MiNNiNGA