Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Page 174
173
Vísindi og samfélög þeirra eru samofin Meginviðfangsefni félagsfræði
vísinda og tækni var nefnt þegar í fyrsta kafla. Steven Shapin og Simon
Schaffer kynntu til sögunnar hugmyndina um að vísindi og samfélög
þeirra væru samofin (e. co-constituted or co-produced).53 Hugmyndina settu
þeir fram í rannsókn á bréfaskiptum Hobbes og Boyle, en þessir áhrifa-
miklu höfundar beittu sér fyrir nútímalýðræði annars vegar og nútíma-
náttúruvísindum hins vegar. Síðar sýndi Sheila Jasanoff fram á að mismun-
andi hugsunarháttur og pólitísk menning þjóða krefðist ólíkra leiða til að
tryggja hlutlægni í ákvörðunum á sviði líftækni í Þýskalandi, Englandi og
Bandaríkjunum.54 Í Þýskalandi hafa minningar um hryllilegar pólitískar og
vísindalegar ákvarðanir nasistanna haft í för með sér að forystumönnum
vísindasamfélagsins er sérstaklega annt um að tryggja að allir mögulegir
hagsmunaaðilar komi að áætlunum um líftæknirannsóknir. Einkunnarorð
þeirra eru: „Aldrei aftur“. Til að hámarka hlutlægni verða rannsakendur
að kappkosta að fá gagnrýnin viðhorf á rannsóknarhugmyndir sínar frá
öllum þeim hópum sem niðurstöðurnar gætu haft áhrif á. Í Englandi þurfa
forystumenn rannsóknateyma að eiga langan og farsælan feril að baki á
viðeigandi rannsóknarsviði og hafa sýnt óaðfinnanlegt siðferði eigi þeir að
geta hámarkað hlutlægni. Í Bandaríkjunum er litið svo á að áhættumat og
megindlegar rannsóknir séu nauðsynlegar til að hámarka hlutlægni vegna
þess að óánægðir Bandaríkjamenn fara oft með umkvörtunarefni sín fyrir
dómstóla og slík gögn eru yfirleitt best til þess fallin að sannfæra kviðdóm-
endur. Þannig sýndi Jasanoff fram á að vísindastarfsemi innan mismunandi
þjóðfélaga getur haft mismunandi viðmið um hvernig eigi að hámarka
hlutlægni, eða að minnsta kosti stefna að hámarkshlutlægni eftir ólíkum
leiðum, háð staðbundnu samhengi hverju sinni.
Með því að tala um hvernig vísindi og samfélög væru samofin var
tókst að leysa hugmyndina um „félagslega smíð“ vísinda af hólmi (e. social
construc tion). Hún var sett fram þegar félagsfræði vísinda og tækni var að
stíga sín fyrstu skref. Að tala um samþættingu (e. co-construction) féll jafn-
vel enn betur að hugmynd Thomasar S. Kuhns fyrir fimm áratugum þess
efnis að bestu vísindi hverju sinni sýndu „heilindi“ (e. „integrity“) gagnvart
sögulegum tíma sínum – að þau snerust um hugmyndir og beindu sjón-
um að þeim vandamálum sem einkenndu þeirra eigin félagslegu tíma, en
53 Steven Shapin og Simon Schaffer, Leviathan and the Air Pump, Princeton, NJ:
Princeton University Press, 1985.
54 Sheila Jasanoff, States of Knowledge og Designs on Nature.
STERKARi HLUTLæGNi FYRiR GRASRÓTARVÍSiNDi