Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Page 177
176
vinna að fjármögnun slíkra rannsókna, safna stundum sjálfir frumgögnum
og sinna fjölmörgum öðrum þáttum í framleiðslu vísindaþekkingar.62
Íhlutun (e. Intervention) endurmetin Í vísindafræðum hefur sjónum á
svipaðan hátt verið beint að tilhneigingu innan vestrænnar vísindaheim-
speki til að ofmeta framsetningu á eðli náttúrunnar á kostnað þess að
viðurkenna mikilvægi vísindalegrar íhlutunar fyrir hana. Þessu hélt ian
Hacking fram í áhrifamikilli grein.63 Þetta viðhorf grefur undan þeirri
skoðun að fræðileg vísindaafrek hafi yfirburði yfir afrek á sviði hagnýtra
vísinda, og þar með hafi vísindalegar nýjungar meira vægi en tækninýjung-
ar. Það felur í sér að það sé mun mikilvægara að „kunna“ (e. knowing how)
en þeir heimspekingar og vísindamenn sem leggja mest upp úr að „vita“ (e.
knowing that) væru fúsir að viðurkenna. Nýlega hafa nokkrir vísindaheim-
spekingar notað líf frumbyggja sem upphafspunkt til að rannsaka aðferðir
þeirra til að efla þekkingarkerfi sitt.64 Sjónarhornsfræðinni er einnig beitt
í þessum rannsóknum, þó að hún sé ekki nefnd á nafn, í þeim tilgangi að
ná sem mestri óhlutdrægni gagnvart þeim heimildum sem tiltækar eru um
þekkingarkerfi utan hins vestræna menningarheims.
Í þessum kafla hef ég haldið því fram að þó að aðferðafræði sjónar-
hornsfræðinnar kunni að koma heimspekingum og þeim sem starfa innan
félagsfræði vísinda spánskt fyrir sjónir,65 samsvara ýmis meginviðfangsefni
á sviði vísinda- og tæknirannsókna staðhæfingum sjónarhornsfræðinnar.
62 Klassísk dæmi eru Steve Epstein, Impure Science. AIDS, Activism, and the Politics
of Knowledge, Berkeley: University of California Press, 1996 og Boston Women’s
Health Collective, Our Bodies, Ourselves, Boston: New England Free Press, 1970.
63 ian Hacking, Representing and Intervening, Cambridge: Cambridge University
Press, 1983.
64 Sjá t.d. James Maffie, „‘in the End, We Have the Gating Gun, and They Have
Not’. Future Prospects of indigenous Knowledges“, Futures 41/2009, bls. 53–65;
David Turnbull, Masons, Tricksters, and Cartographers. Comparative Studies in the
Sociology of Science and Indigenous Knowledge, New York: Harwood Academic Pub-
lishers, 2000; Helen Verran, Science and an African Logic, Chicago: University of
Chicago Press, 2001; og Helen Watson-Verran og David Turnbull, „Science and
Other indigenous Knowledge Systems“, Handbook of Science and Technology Studies,
ritstj. Sheila Jasanoff o.fl., Thousand Oaks, CA: Sage, 1995, bls. 115–139; sem og
Sandra Harding, Is Science Multicultural? Postcolonialisms, Feminisms, and Epistemolo-
gies, Bloomington: indiana University Press, 1998; Sandra Harding, Sciences from
Below; og Sandra Harding, „introduction. Beyond Postcolonial Theory“.
65 Sjá þó Mark Elam og Oscar Juhlin, „When Harry Met Sandra. Or, Using a
Feminist Standpoint to Get the Right Perspective on the Sociology of Scientific
Knowledge“, Science as Culture 1/1998.
sanDRa HaRDing