Breiðfirðingur - 01.04.1982, Page 109
107
BREIÐFIRÐINGUR
náttmyrkri og rigningu til að fá okkur heim til sín, en þar beið
okkar hið glæsilegasta veisluborð og urðu þarna miklir
fagnaðarfundir, Þorsteinn var fjölhæfur tónlistarmaður,
afbragðs söngmaður og lék bæði á orgel og píanó, auk þess að
vera hvers manns hugljúfi.
Áfram var haldið um nóttina og komið til Reykjavíkur kl. 6 á
mánudagsmorgun. Þreyta virtist ekki þjá okkur í þessari ferð
þótt stíft væri haldið áfram. Kveðskapur og grínsögur entust
okkar alla leiðina þrátc fyrir náttmyrkur og rigningu. Vín
höfðum við ekki meðferðis í slíkar ferðir. I mesta lagi var það þá
einn koníakspeli, sem nota skyldi sem lyf, ef einhver fengi ræmu
í hálsinn.
Akureyrarblöðin sendu okkur tóninn rtókkrum dögum síðar
og hann ekki af lakara taginu. Blaðið Islendingur segir m.a. í
ritdómi 8. október 1952:
Fjórmenningarnir „Leikbræður“ héldu söng-
skemmtun í Nýjabíó s.l. sunnudag. Var húsið nær
fullsetið, þrátt fyrri storm og stórrigningu, og söng
þeirra félaga ákaft fagnað, enda mun þetta meðal
bestu „kvartetta“, sem heimsótt hafa Akureyri. Alls
sungu þeir 13 lög af 30, sem þeir hafa æft, og urðu
þeir að tvítaka mörg þeirra og syngja aukalög.
Þegar hér var komið sögu var aðeins staldrað við.
Kvartettinn var nú í allgóðri þjálfun eftir allt þetta
hljómleikahald um sumarið og haustið. Við ræddum þann
möguleika að taka Gamla bíó á leigu og auglýsa sjálfstæða
hljómleika. Þótti okkur í nokkuð mikið ráðist, því hér voru
kröfuharðari áheyrendur en úti á landsbyggðinni þegar um það
var að ræða að bjóða upp á sjálfstæða hljómleika. Við ræddum
málið við Carl Billich og Gunnar Sigurgeirsson en báðir voru
reiðubúnir að styðja okkur enn sem fyrr. Ákvörðun var tekin og