Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 9
A ð s n í ð a s é r s t a k k e f t i r v e x t i
TMM 2009 · 3 9
samfélagið og hafa víðtæk áhrif á það allt. Þegar við lítum til stærstu
dómsmála síðustu áratuga virðast þau öll að nokkru bera sama svipmót.
Hvort sem málin hafa verið kennd við Geirfinn, Hafskip eða Baug, eiga
þau það sameiginlegt að á meðan þau voru til meðferðar lék samfélagið
á reiðiskjálfi. Enginn fór varhluta af þeim umræðum sem áttu sér stað í
fjölmiðlum, á vinnustöðum eða í vinahópum og í öllum tilfellum voru
haldnar tilfinningaþrungnar ræður á Alþingi, þar sem menn voru oft
bornir þungum sökum. Ótrúlegir f lokkadrættir tengdust þessum
málum þar sem þjóðinni var næstum því skipt í tvö lið, hvort sem henni
líkaði það betur eða verr. Þá er einnig athyglivert að niðurstaða þessara
dómsmála var mun rýrari en lagt var upp með og í sumum þeirra hefur
sannleikurinn jafnvel aldrei komið fyllilega fram. Í öllum tilfellum
reyndi á smæð samfélagsins og kunningjatengsl sem geta verið lamandi
þáttur í samfélagi okkar. Það væri verðugt rannsóknarefni að fjalla um
þessi mál saman – og draga þannig fram hve vanmegnug við höfum
verið gagnvart erfiðum og flóknum úrlausnarefnum, sem vekur með
manni nokkurn ugg varðandi úrlausn þess vanda sem við stöndum
frammi fyrir nú um stundir. Við þurfum að finna leiðir til að takast á
við ágreining og kveða upp dóma í vandasömum málum í stað þess að
slík mál taki á sig mynd hvirfilbyls sem skilji eftir sig eyðileggingu á
öllum sviðum. Hér er ekki átt við að ekki geti verið heilbrigt að takast á
um málefni og að ágreiningur sé alltaf skaðlegur. Fyrrgreind mál og þær
deilur sem tengdust þeim verða þó seint taldar til heilbrigðra skoðana-
skipta heldur sýndu greinilega vanþroska opinbera umræðu sem leystist
upp í persónulegan skæting og ringulreið þar sem málefni og staðreynd-
ir viku. Hverju samfélagi er nauðsynlegt að geta leitt ágreining til lykta
eða eiga kost á að setja niður deilur, að öðrum kosti svífa þær yfir vötn-
um um ókomin ár og eitra það sem á eftir fer. Þetta er og hefur verið
veikleiki íslensks samfélags frá upphafi og er bersýnilega mikið umhugs-
unarefni þeim sem skrifuðu sumar Íslendingasagnanna og Sturlungu.9
Sama virðist vera uppi á teningnum nú og ef við horfumst ekki í augu
við þennan veikleika drögum við þróttinn úr samfélaginu og fyrr en
varir gætum við þurft að skjóta málum til annarra þjóða líkt og gert var
í kjölfar deilna fyrr á öldum.
Ábyrgðin á tilrauninni
Í örsmáu samfélagi er erfitt að falla inn í fjöldann. Ólíkt stórborgunum
þar sem við verðum hluti af mannhafinu á götum úti sækir fólk í litlu
samfélagi út á opinbera staði til að sýna sig og sjá aðra. Tengsl fólks eru
TMM_3_2009.indd 9 8/21/09 11:45:27 AM