Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 79
M y n d i n a f J ó n a s i
TMM 2009 · 3 79
Hér má sjá að Fjölnismenn þekktu hina nýju ljós myndatækni og hafa
rætt um það sín á milli að láta gera af sér myndir og Konráð hefur hvatt
vini sína að láta ljósmynda sig, enda var nýtt tímabil í gerð mannamynda
að hefjast.
Höfuð Jónasar Hallgrímssonar
Fyrir nokkru hóf ég að skrá myndir og myndverk sem tengjast Jónasi
Hallgrímssyni og verkum hans, bæði teikningar og málverk af honum
sjálfum og myndir og myndskreytingar við ljóð hans og sögur – svo og
málverk og teikningar tengdar Hrauni í Öxnadal. Skrán ingin er unnin
í tengslum við menningarfélagið Hraun í Öxnadal sem á jörðina á
Hrauni og hefur komið þar á fót Jónasar setri með minningarstofu um
skáldið, náttúrufræðinginn og stjórnmálamanninn Jónas Hallgrímsson
og er fræðimannsíbúð í endurgerðu íbúðarhúsinu. Þá hefur félagið í
samvinnu við umhverfis ráðuneyti og Hörgárbyggð stofnað fólk vang í
landi Hrauns og vinnur nú að því ásamt Skógrækt ríkisins að koma á fót
trjásafni, arboretum, í heimalandinu utan fólkvangsins, auk margra
annarra verkefna sem tengjast Jónasarsetri.
Þegar ég tók að kanna teikningarnar fjórar eftir Helga Sigurðsson af
Jónasi, sem varðveittar eru í Listasafni Íslands, vakti það athygli mína
hversu ólíkar þær eru – og þó einkum og sér í lagi hversu frábrugðin ein
teikningin er hinum þremur, bæði hvað varðar sjónar horn, listrænt yfir-
bragð og frágang. Teikning sú, sem sker sig úr, er hálfvangamyndin,
trekvartprofilen, merkt LÍ 152, og ég nefndi höfuð Jónasar. Eins og áður
er nefnt er myndin dregin mjúkum dráttum, hlutföll og fjarvídd eðlileg
og persónueinkenni skýr, ekki síst döpur augu undir þungum augnlok-
um. Þegar ég áttaði mig á því að Helgi Sigurðsson hefði stundað nám í
ljósmyndun í Kaupmannahöfn laust niður þeirri hugmynd að hér væri
um að ræða teikningu sem gerð væri eftir ljósmynd. Ljósmyndagerð á
þessum tíma var kennd við Frakkann Louis Daguerre [1787–1851] og
kölluð daguerrotypi, og eins og áður hefur komið fram nam Helgi ljós-
myndagerð, daguerrotypi, í Höfn – fyrstur Íslendinga.19
Þegar ég leitaði upplýsinga um ljós myndagerð Daguerres hjá Ingu
Láru Bald vinsdóttur, fagstjóra í Ljósmyndasafni Íslands, Guðmundi
Ingólfssyni, ljós myndara í Ímynd, ljósmyndastofu, og Guðmundi Oddi
Magnússyni, prófessor við Listaháskóla Íslands, kom í ljós að teikningin
af höfði Jónasar gat ekki verið gerð með ljósmyndaaðferð Daguerres. Til
þess var tæknin bæði of þung í vöfum og flókin auk þess sem vinna
þurfti ljósmyndirnar við sérstakar aðstæður.20
TMM_3_2009.indd 79 8/21/09 11:45:35 AM