Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 58
58 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
ytra en finnur hvernig gömlu heimkynnin toga í hann. Og síðast en ekki síst
skýrist myndin af gamla vesalingnum, föðurmyndinni á bænum, og við hvað
hann mátti glíma á sinni ævi. Það dregur að sögulokum. Allir sjá fyrir sér sína
lausn en hver þeirra gengur upp? Endirinn verður án allra flugeldasýninga,
fremur eins og rökrétt lokatafl, í samræmi við hæga en þétta hrynjandi sagn-
anna þriggja.
Persónur sem lifa
Að lestri loknum situr lesandi eftir með ýmsar hugrenningar. Ekki einasta
hefur hann átt samleið með eftirminnilegum persónum heldur áttar hann sig
einnig á því að hér hefur ótrúlega margt komið við sögu: Dauðinn, sorgin,
sektarkenndin, bælingin, lygin, ræturnar. Ástin, trúin og efinn. Samkyn-
hneigð, alkóhólismi, forboðin ást, ást í meinum. Anne B. Ragde lætur sér fátt
mannlegt óviðkomandi og er það vafalaust ein ástæðan fyrir vinsældum þess-
ara sagna. En fleira kemur til. Margir hafa haft á orði hve persónur bókanna
hafi orðið þeim hugstæðar. Slíkt er að sjálfsögðu aðalsmerki á góðum skáld-
skap; persónur sem verða svo sannar að þær lifna á síðunum. Anne B. Ragde
hefur snilldartök á persónusköpun og er þar líklega kominn annar lykillinn að
velgengni bókanna. Hún er ekki aðeins næm á mannlegt eðli, skringilegheit og
breyskleika, hún teiknar upp fólk sem lesandi lætur sig varða og aðstæður sem
hann þekkir sjálfan sig í. Manneskjur sem eru misskynsamar, jafnvel hlægileg-
ar, en um leið finnur maður til samúðar með þeim. Og allt hið hversdagslega
sem þær taka sér fyrir hendur fær mann til að kinka kolli, jafnvel kíma og hlæja
upphátt. Öll smáatriðin, sem höfundur er örlátur á, eiga sinn þátt í að fylla út í
heilsteypta og litríka mannlífsmynd. Skapa sögu sem er bráðlifandi og snýst
um það, þegar upp er staðið, hvernig hægt sé að sættast við tilveruna í stað þess
að flýja hana.
Maríanna Clara Lúthersdóttir
Óbærilegur léttleiki Davids Sedaris
Eins og samkynhneigður Woody Allen eða hógvær Oscar Wilde – David Sed-
aris er þó í raun engum líkur. Á litríkri ævi hefur hann fengist við ótalmargt
en þekktastur er hann fyrir pistla sína sem hann hefur lesið upp í ljósvakamiðl-
um og gefið út í bókarformi. Efni þeirra er meira eða minna sjálfsævisögulegt
og því er ekki laust við að lesendum finnist þeir þekkja Sedaris náið. Þeir vita
TMM_3_2009.indd 58 8/21/09 11:45:32 AM