Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 81
M y n d i n a f J ó n a s i
TMM 2009 · 3 81
Myndin af Jónasi
Þegar allt kemur í einn stað er kenn-
ing mín sú að Helgi Sigurðsson hafi
heimsótt kunningja sinn Jónas Hall-
grímsson þar sem hann lá á Frið-
riksspítala eftir að honum skruppu
fætur í stiganum upp í herbergi sitt á
fjórðu hæði í Skt. Pederstræde nr.
140 seint að kvöldi 21. maí 1845.
Jónas var þá rændur allri lífsgleði og
þótti óþarfi að gera neinum ónæði
um nóttina af því að hann vissi að
hann gæti ekki lifað, eins og Konráð
Gíslason hefur eftir honum.23 Með
fortölum hefur Helga tekist að telja
Jónas á að leyfa sér að draga upp af
honum mynd með teiknivél, camera
lucida, en Konráð Gíslason hafði árið áður hvatt þá Brynjólf Pétursson,
Grím Thomsen – og Jónas til þess að láta gera af sér mynd „svo mynd-
irnar verði til eptir þeirra dag, svo skal jeg sjá um, þegar þeir eru dauðir,
og jeg er orðinn blindur, að þær verði stungnar í kopar“, eins og áður var
nefnt.
Hálfvangamyndin, sem svo mjög sker sig úr öðrum myndum Helga
Sigurðssonar, er að mínum dómi fyrsta myndin sem hann gerði af Jón-
asi. Hún er á sömu örk og myndin af líki Jónasar, sem Helgi teiknaði
daginn eftir að Jónas dó, eftir að hann færði líkið í búning og reisti það
upp, en sú mynd var áður talin elsta mynd Helga af Jónasi. Þessar tvær
myndir eru á annars konar pappír en hinar myndirnar tvær í Listasafni
Íslands, gráleitum, en það var dökkur eða gráleitur pappír sem gjarna
var notaður í teiknivélina camera lucida.
Eftir að Helgi hafði dregið upp hálf vanga myndina andaðist Jónas
skyndi lega að morgni 26. maí 1845. Þá hafði Helgi ekki lokið ætlunar-
verki sínu – að gera mynd af Jónasi sem eftir hans dag mætti stinga í
kopar. Daginn eftir fór Helgi því að líki Jónasar, færði hann í búning
hans og reisti hann upp, dró upp mynd af honum, eins vel og nákvæmlega
eins og hann gat, – mynd af líki Jónasar – en líkaminn var svo sem fallinn
saman og höfuðið sigið niður á bringuna.24
Á myndinni af líki Jónasar sjást döpur augu undir þungum augn-
lokum. Augu Jónasar hafa hins vegar verið lokuð þegar Helgi Sigurðsson
Rannveig Hallgrímsdóttir 1872.
TMM_3_2009.indd 81 8/21/09 11:45:35 AM