Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 80
Tr y g g v i G í s l a s o n
80 TMM 2009 · 3
Gleymd tækni
Guðmundur Oddur Magnússon pró-
fessor benti mér þá á bók eftir enska
málarann David Hockney sem út kom
2001. Bókin heitir Secret Knowledge.
Rediscovering the Lost Techniques of the
Old Masters og fjallar um gleymda
tækni gömlu meist aranna, eins og
undir titill bókar innar ber með sér. David
Hockney hafði veitt því athygli hversu
nákvæmlega gömlu meisturum málara listarinnar hafði tekist að mála
hin minnstu smáatriði í persónueinkennum, klæðnaði og um hverfi
fólks, hlutföll og fjarvídd voru óaðfinnanleg og hann spurði sjálfan sig
hvernig þeir hefðu getað gert þetta.
Niðurstöður Davids Hockney vöktu mikla athygli en þær felast í fáum
orðum í því að gömlu meistarar málaralistarinnar hafi notað teiknivélar
af ýmsu tagi, holspegla og prismu til þess að gera verk sín, bæði málverk
og teikningar. Meðal þess ara teiknivéla voru camera obscura og camera
lucida.21
Camera lucida
Sagt er að enski læknirinn og lífeðlisfræðingurinn William Wollaston
[1766–1828] hafi fundið upp camera lucida sem var afsprengi annarra
tækja hans sem m.a. voru notuð við mælingar í steinafræði. Camera
lucida er gerð af grönnu röri eða pípu í þremur hlutum, sem lengja má
og stytta að þörfum, spegli og ferstrendu prisma, glerstrendingi, svo og
skrúfuklemmu til þess að festa tækið á teiknibretti eða borð, sjá mynd-
ina hér að ofan. Tæki þetta var miklum mun auðveldara í meðförum en
eldri teiknivél, sem kölluð er camera obscura og lengi hafði verið
notuð.22
Það er teiknivélin camera lucida sem ég tel að Helgi Sigurðsson hafi
notað þegar hann dró upp myndina af höfði Jónasar, myndina af Jónasi.
Ýmislegt í gerð myndarinnar bendir til þessa, m.a. að hutföll eru eðlileg
og persónueinkenni skýr en hárið, eyrað og hnakkinn ekki teiknuð
vegna þess að höfuð Jónasar lá á kodda eða svæfli í rúmi hans. Auk þessa
má nefna að pappírinn, sem myndin er dregin á, virðist vera pappír sá
sem algengt var að nota við teikningar í camera lucida, en það mál
þarfnast nánari athugunar.
Camera lucida í notkun.
TMM_3_2009.indd 80 8/21/09 11:45:35 AM