Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 32
32 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
bókarinnar svo innihald hennar flæðir út fyrir brúnirnar líkt og vatn rennur
af flötum lófa …
Um Jesse Ball sjálfan er það að segja að hann fæddist árið 1978 á Long Island.
Hann hóf feril sinn sem ljóðskáld og fyrsta ljóðabók hans, March Book, kom út
hjá Grove Press árið 2004. Sú bók vakti verðskuldaða athygli meðal bók-
menntafólks fyrir frumleika í viðfangsefnum og hnitmiðun sem þótti með
ólíkindum hjá svo ungu skáldi. Jesse Ball bjó um skeið á Íslandi og hér skrifaði
hann í samvinnu við eiginkonu sína, Þórdísi Björnsdóttur, prósaljóða/örsagna-
safnið Vera&Linus (Nýhil 2006), en ári síðar kom fyrsta skáldsaga hans, Sam-
edi The Deafness, út hjá Vintage/Random House-útgáfunni. Samedi the Deaf-
ness er ekki síður snúið og furðulega samsett verk en The Way Through Doors.
Þar segir frá ungum manni sem flækist inn í samsæri illmennisins Samedis
um að gera jarðarbúa heyrnarlausa, er rænt og komið á endurhæfingarstofnun
fyrir lygara, ásamt því að eftirsjá eftir ósýnilegri uglu bernskunnar hrjáir hann.
Bókin hlaut góðar viðtökur og sagði í New York Times að þótt efast mætti um
áreiðanleika alls sem fyrir bæri í sögunni þyrfti enginn að efast um hæfileika
þess sem hana ritaði. Með henni skipaði Jesse Ball sér í fremstu röð þeirra
bandarísku rithöfunda af yngri kynslóðinni sem hafa hafnað hinu formlata
raunsæi markaðsskáldsögunnar og leitast nú við að endurnýja frásagnarbók-
menntirnar með því að byggja á arfi módernismans og framúrstefnunnar.
The Way Through Doors kom út hjá Vintage/Random House fyrr á þessu ári
og stendur bókin undir þeim væntingum sem fyrri verk höfundar vöktu með
lesendum og gagnrýnendum.
Rúnar Helgi Vignisson
Feita piltsins draumur
Um Junot Díaz
Frá því að hún kom út árið 2007 hefur fyrsta skáldsaga Junots Díaz, The Brief
Wondrous Life of Oscar Wao, notið mikillar velgengni í bandarískum bók-
menntaheimi, m.a. sópað til sín virtum verðlaunum á borð við Pulitzerinn og
National Book Critics Circle-verðlaunin. Bókin dregur dám af uppruna höf-
undarins sem er fæddur í Dóminíska lýðveldinu árið 1968 en fluttist sex ára
gamall til New Jersey í Bandaríkjunum. Áður hefur hann sent frá sér smá-
sagnasafnið Drown við góðan orðstír, auk þess sem hann hefur fengið sögur
birtar í virtum safnritum.
The Brief Wondrous Life of Oscar Wao ber ekki að öllu leyti nafn með rentu
TMM_3_2009.indd 32 8/21/09 11:45:29 AM