Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 79
M y n d i n a f J ó n a s i TMM 2009 · 3 79 Hér má sjá að Fjölnismenn þekktu hina nýju ljós myndatækni og hafa rætt um það sín á milli að láta gera af sér myndir og Konráð hefur hvatt vini sína að láta ljósmynda sig, enda var nýtt tímabil í gerð mannamynda að hefjast. Höfuð Jónasar Hallgrímssonar Fyrir nokkru hóf ég að skrá myndir og myndverk sem tengjast Jónasi Hallgrímssyni og verkum hans, bæði teikningar og málverk af honum sjálfum og myndir og myndskreytingar við ljóð hans og sögur – svo og málverk og teikningar tengdar Hrauni í Öxnadal. Skrán ingin er unnin í tengslum við menningarfélagið Hraun í Öxnadal sem á jörðina á Hrauni og hefur komið þar á fót Jónasar setri með minningarstofu um skáldið, náttúrufræðinginn og stjórnmálamanninn Jónas Hallgrímsson og er fræðimannsíbúð í endurgerðu íbúðarhúsinu. Þá hefur félagið í samvinnu við umhverfis ráðuneyti og Hörgárbyggð stofnað fólk vang í landi Hrauns og vinnur nú að því ásamt Skógrækt ríkisins að koma á fót trjásafni, arboretum, í heimalandinu utan fólkvangsins, auk margra annarra verkefna sem tengjast Jónasarsetri. Þegar ég tók að kanna teikningarnar fjórar eftir Helga Sigurðsson af Jónasi, sem varðveittar eru í Listasafni Íslands, vakti það athygli mína hversu ólíkar þær eru – og þó einkum og sér í lagi hversu frábrugðin ein teikningin er hinum þremur, bæði hvað varðar sjónar horn, listrænt yfir- bragð og frágang. Teikning sú, sem sker sig úr, er hálfvangamyndin, trekvartprofilen, merkt LÍ 152, og ég nefndi höfuð Jónasar. Eins og áður er nefnt er myndin dregin mjúkum dráttum, hlutföll og fjarvídd eðlileg og persónueinkenni skýr, ekki síst döpur augu undir þungum augnlok- um. Þegar ég áttaði mig á því að Helgi Sigurðsson hefði stundað nám í ljósmyndun í Kaupmannahöfn laust niður þeirri hugmynd að hér væri um að ræða teikningu sem gerð væri eftir ljósmynd. Ljósmyndagerð á þessum tíma var kennd við Frakkann Louis Daguerre [1787–1851] og kölluð daguerrotypi, og eins og áður hefur komið fram nam Helgi ljós- myndagerð, daguerrotypi, í Höfn – fyrstur Íslendinga.19 Þegar ég leitaði upplýsinga um ljós myndagerð Daguerres hjá Ingu Láru Bald vinsdóttur, fagstjóra í Ljósmyndasafni Íslands, Guðmundi Ingólfssyni, ljós myndara í Ímynd, ljósmyndastofu, og Guðmundi Oddi Magnússyni, prófessor við Listaháskóla Íslands, kom í ljós að teikningin af höfði Jónasar gat ekki verið gerð með ljósmyndaaðferð Daguerres. Til þess var tæknin bæði of þung í vöfum og flókin auk þess sem vinna þurfti ljósmyndirnar við sérstakar aðstæður.20 TMM_3_2009.indd 79 8/21/09 11:45:35 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.