Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 11

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 11
A ð s n í ð a s é r s t a k k e f t i r v e x t i TMM 2009 · 3 11 alvarlega erlendis og gáfum stórþjóðunum ekkert eftir þangað til við kollsigldum okkur. Þegar mestur völlur var á þjóðinni og stórmennskan í algleymingi kom best í ljós hve tengslin við ræturnar höfðu veikst. Um tíma mátti heyra raddir um það hve mikilvægt væri að gera samfélagið alþjóðlegra og sumir töluðu í alvöru um það að þjóðin yrði tvítyngd. Íslenskan, sem er grundvöllur menningar okkar og samfélags, var ekki aðeins kostn- aðarsöm heldur til trafala því svo fáir töluðu hana! Í framtíðarskýrslu Viðskiptaráðs, sem út kom 2006, var meðal annars sagt: „Við Íslend- ingar búum við óvenjulega þversögn sem tungumálið er. Fræðimenn og áhugamenn um samfélag og þjóðlíf telja flestir að ekkert eitt geri okkur frekar að sjálfstæðri þjóð en tungumálið“ og síðar sagði: „Á sama tíma gera menn sér fulla grein fyrir því að tungumálið er okkar helsti þrösk- uldur í samskiptum við umheiminn.“10 Af þessum sökum töldu skýrslu- höfundar að stórefla ætti tungumálakennslu, einkum ensku, og kennsla sumra greina ætti í auknum mæli að vera á ensku á grunn- og fram- haldsskólastigi. Sumir gengu enn lengra og reiknuðu út þann sparnað sem ná mætti með því að taka ensku alfarið upp í samfélaginu.11 Lokaorð Óhætt er að fullyrða að íslensk þjóð hefur sjaldan staðið á vandasamari tímamótum en nú um stundir. Ef til vill erum við komin að þeim vendipunkti sem Mikael lýsir, að form samfélagsins breytist eða að íslenska þjóðin hætti að vera til. Við höfum séð hvernig samlíking við náttúrulögmálin getur hjálpað okkur að skilja nokkra mikilvæga veik- leika í íslensku samfélagi og án efa er dýpri skilningur á því hvað felst í því að vera smáþjóð lykillinn að því að hægt verði að reisa samfélagið við og efla stofnanir þess. Að mati Mikaels höfum við þekkt menningu okkar og sögu vel og segja má að í þeim efnum höfum við þekkt stærð okkar, en við höfum ekki þekkt smæð okkar. Reyndar virðist mér þó, eins og ég hef haldið fram hér að framan, sem vitund okkar um eigin menningu hafi dofnað á síðusta áratug og það hafi veikt varnir okkar til muna. Hvort smæð sé veikleiki eða styrkleiki fer allt eftir því hversu vel við skiljum hana og tökumst á við hana. Hér hef ég einblínt á veikleik- ana sem fylgja smæðinni en hún getur einnig verið kostur sem við þurf- um að nýta okkur í meiri mæli við uppbyggingu stofnana, framkvæmd lýðræðis og til að ná meiri snerpu í samskiptum. Á einni öld hefur íslenskt samfélag nánast verið byggt upp frá grunni af miklum dugnaði. Á örskömmum tíma breyttist Ísland úr vanþróuðu TMM_3_2009.indd 11 8/21/09 11:45:27 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.