Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Side 18
18 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
Fimm árum síðar gaf hann út sína fyrstu bók á hollensku. Hvert ritverkið
hefur fylgt öðru en Hús moskunnar er það sem hefur notið mestra vinsælda,
þótt enn hafi bókin ekki verið þýdd á ensku. Nýverið kom hins vegar út hjá JPV
íslensk þýðing Jónu Dóru Óskarsdóttur á bókinni sem hér hefur verið vitnað
til.
Vestrænir fræðimenn hafa undanfarna þrjá áratugi keppst við að spá því að
íslamska ríkið Íran muni líða undir lok. Þeir gera því skóna að fólk muni kasta
af sér oki trúarofstækisins þegar fram líða stundir. Þessar byltingarspár fengu
byr undir báða vængi þegar mótmæli tugþúsunda voru barin niður eftir for-
setakosningarnar í Íran snemma sumars.
Klofningurinn innan gömlu byltingarklíkunnar var sá alvarlegasti í 30 ára
sögu íslamska ríkisins. Mótmæli hafa ekki verið algeng og þetta voru líklega
þau fjölmennustu síðan byltingin var gerð. En það vakti athygli að fólkið vildi
ekki umbylta hinu íslamska ríki, heldur bara losna við ákveðna menn úr
stjórnkerfi þess. Slagorð mótmælendanna voru full af trúartilvísunum og
grænn, litur íslams, varð einkennislitur mótmælanna.
Það síðasta sem fer ofan í kisturnar í kjallara moskunnar, svo lesandinn sjái
til, er bréf sem Aga Djan berst, með marglitum túlípönum á frímerkjunum. Í
því segir Shahbal að hann sé kominn á öruggan stað. Bréfið mætti auðveldlega
lesa sem persónuleg skilaboð höfundarins. Hann segist hafa tekið til við að
segja sögur frá gamla landinu, meðal annars sögu húss moskunnar. Hann hafi
breytt um ritmál, fyrirverði sig fyrir svikin við móðurmálið, en reyni jafnframt
að gæða ritmál sitt töfrum hinnar gömlu persnesku tungu.
Bréfið verður hluti af sögu Írans, í kistunum í kjallara moskunnar. Sú saga
er skrifuð í dagbækur hófsemdarmannsins Aga Djans. Hann lifði af holskeflu
byltingarinnar og stríðsins og aðlagaðist smátt og smátt nýju samfélagi, eins og
hríslan sem bognar en brotnar ekki.
Erla Sigurðardóttir
Naja Marie Aidt
Danska skáldið Naja Marie Aidt er eldri dóttir danskra kennarahjóna og kom
í heiminn á aðfangadagskvöld árið 1963 í grænlensku byggðinni Aasiaat
(Egedesminde) í sunnanverðum Diskóflóa. Í skerjagarðinum eru margar eyjar
friðaðar, þar er fjölskrúðugt fuglalíf og hafið krökkt af hvölum. Hvalirnir eða
öllu heldur tennur þeirra voru kveikjan að því að Niels Egede, sonur Hans
Egede kristniboða, reisti þar verslunarmiðstöð árið 1759. Tveimur öldum síðar
voru fiskveiðar mikilvægasti atvinnuvegurinn í Aasiaat en þar er líka mennta-
TMM_3_2009.indd 18 8/21/09 11:45:28 AM