Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Qupperneq 24
24 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
Einar Már Guðmundsson
Tariq Ali: Skáld andstöðunnar
1
Ef þú gúgglar Tariq Ali færðu yfir tíumilljón færslur. Ótal myndbönd skjóta
upp kollinum, viðtöl, ritgerðir, upplýsingar um bækur. Tariq Ali um Pakistan,
Tariq Ali um Tony Blair, Tariq Ali um Balkanskagann, Bhutto … Þar er að
finna tilvísanir í stórblöð og tímarit. Nefndar eru
heimildarmyndir, ritdeilur.
Það sést með öðrum orðum að maðurinn hefur
verið lengi að, komið víða við og verið fastur fyrir.
Samt var Tariq Ali að verða fimmtugur þegar
fyrsta skáldsagan hans kom út, háðsádeila á
alþjóðahreyfingu trotskýista, fyndin en háalvarleg
þegar betur er að gáð. Hún heitir Lausnin (Redemp-
tion) og kom út árið 1990. Þar stíga þekktir
trotskýistar fram á sviðið, sem og hópur í Bret-
landi í kringum mann sem hét Healy og voru kall-
aðir Healyistar. Í þeim hópi var leikkonan fræga
Vanessa Redgrave og gott ef hún er ekki fyrirmynd persónu í sögunni. Þrátt
fyrir ádeiluna er sagan full af samstöðu. Síðan hafa komið út sjö skáldsögur,
tvær í viðbót tengdar hruni kommúnismans og kreppu vinstrihreyfingarinnar
og fimm skáldsögur sem hlotið hafa heitið Islam Quintet, sú fimmta að vísu á
leiðinni þegar þetta er skrifað. Þetta eru sögulegar skáldsögur sem gerast á
ólíkum átakatímum kristinnar menningar og íslams, í krossferðunum á tólftu
öld, við fall Máraveldisins á Spáni um 1500, í hruni Ottómanaveldisins í lok
nítjándu aldar.
Þessar skáldsögur hafa verið þýddar á ótal tungumál og verðlaunaðar í bak
og fyrir. Samt er Tariq Ali líklega þekktari fyrir skrif sín um sögu og stjórnmál,
bækur um baráttuhreyfinguna, bækur um Írak, bækur um bókstafstrú, Bush
og Blair. Tariq Ali er óþreytandi við að leiðrétta rangfærslur heimsins, þá föls-
uðu heimsmynd sem að okkur er haldið. Staðreyndin er sú að okkur er ekki
bara gert að tileinka okkur sjónarmið Bandaríkjanna; við búum í sjálfu sjón-
arhorninu og hin litla andstaða undanfarinna ára, fall kommúnismans, hrun
evrópskrar jafnaðarstefnu, allt þetta hefur gert það að verkum að við kokgleyp-
um alls konar lygi án minnstu andstöðu. Auðvitað kemur breytt eignarhald á
fjölmiðlum þar til skjalanna, hvernig sannleikurinn þjappast saman einsog
auðmagnið. Sjálfur sannleikurinn verður hnattvæddur, einsog risafyrirtæki,
með jaðarsvæðum, ótal herbergjum, fullt af viðhorfum, en öll byggingin undir
©
N
in
a
Su
bi
n
TMM_3_2009.indd 24 8/21/09 12:53:43 PM