Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Side 40
40 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
Allt frá fyrstu bók hefur Johan Harstad skrifað og gefið út af miklum krafti
en ekki er ætlunin að fjalla um öll verk hans hér. Þó má geta þess að nýjasta bók
hans, Hässelby, heitir eftir sænsku úthverfi og fjallar um barnabókapersónuna
Einar Áskel sem vaxinn er úr grasi og á í samskiptaörðugleikum við þunglynd-
issjúklinginn pabba sinn. Einar Áskell (sem reyndar heitir Albert Åberg á
norsku) ferðast til Asíu til að reyna að klippa á ósýnilega naflastrenginn, en
hann getur ómögulega losað sig við samviskubitið gagnvart pabbanum. Johan
Harstad hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín og þessa
dagana gegnir hann, fyrstur manna, stöðu hirðskálds við Norska þjóðleikhús-
ið í Osló.
Það verk Harstads sem vakið hefur mesta athygli er skáldsagan Buzz Aldrin,
hvor ble det av deg i alt mylderet? (Hvað varð um Buzz Aldrin í manngrúan-
um?) sem kom út árið 2005. Segja má að í þessu verki haldi höfundurinn áfram
að vinna með angistarfullar hversdagsmanneskjur líkar þeim sem voru í
Ambulanse, en bókin er mikill doðrantur (hátt á sjöunda hundrað síður í
norsku útgáfunni). Buzz Aldrin … hefur verið þýdd á um tug tungumála og á
næsta ári verður frumsýnd bíómynd eftir verkinu.
Í Buzz Aldrin, hvor ble det av deg i alt mylderet? er aðalpersónan og sögu-
maðurinn, Mattias, fæddur 20. júlí 1969, á sömu stundu og Neil Armstrong og
Edwin „Buzz“ Aldrin stigu á tunglið. Mattias er kurteis og vel upp alinn garð-
yrkjumaður, einn þeirra sem kjósa að hverfa í fjöldann, hálfgerð mannafæla
sem vinnur sín persónulegu afrek utan við sviðsljósið, líkt og til dæmis Buzz
Aldrin sem gekk á tunglið á eftir Armstrong og vann kannski mestu vinnuna
en hvarf þó í alltaf skuggann eins og Tenzing Norgay sem var félagi Edmunds
Hillary í göngunni á Mount Everest.
Nýir tímar gengu í garð með landgöngu manna á tunglið fyrir fjörutíu
árum. Allir sem muna svo langt vita hvar þeir voru staddir á þessari stundu,
flestir voru límdir við suðandi útvarp eða svarthvítt sjónvarp. Stundin er upp-
haf nýrra tíma og nákvæmlega þá fæðist aðalpersóna bókarinnar. Mattias
heillast strax sem barn af manninum sem gekk annar á tunglið, í skólanum
verður hann bókstaflega að Buzz Aldrin og klæðist eins og hann á grímuballi.
Honum gengur vel í því sem hann tekur sér fyrir hendur, en hann er aldrei
fremstur. Hann hefur gullfallega söngrödd sem fáir vita af og syngur ógjarna,
samtals þrisvar í bókinni.
Mattias eignast kærustu en eftir tólf ára samband segir hún honum upp
vegna annars manns. Það gerir hún uppi á Kjeragbolten, fimm rúmmetra
stórum steini sem fastur er á milli tveggja klettaveggja í 1110 metra hæð yfir
Lysefjorden í Rogalandi. Kjeragbolten er eins og lítið tungl og undir er geim-
urinn. Um svipað leyti missir Mattias vinnuna og þegar þarna er komið sögu
brotnar hann saman, situr einn og miður sín í tómri íbúð. Þá býður æskuvinur
hans honum að koma með sem hljóðmaður fyrir hljómsveit sem er á leið til
Færeyja að spila, og Mattias slær til. Eftir fyllirí og blakkát rankar hann við sér
á eyðilegum stað í rigningu í Færeyjum og þar finnur sálfræðingurinn Hav-
stein hann og fer með hann til bæjarins Gjógv, þar sem búa um fimmtíu
TMM_3_2009.indd 40 8/21/09 11:45:30 AM