Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Side 55

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Side 55
TMM 2009 · 3 55 A n n e B . R a g d e viðkomandi svo að fela, en þegar allt kemur til alls og allar grímur eru fallnar, kemur upp þörf fyrir einhvers konar hreinsun. Og hér endurheimtir Aliide loks eftirnafnið sitt. Hún heitir Truu að ættarnafni, sem er gott og gilt eistneskt nafn og þýðir „traustur, einhverjum trúr“. Sofi Oksanen hefur tekist að koma tímabæru og lítt umtöluðu efni í sögu- form sem líkist grískum harmleik, með upphafi, vélráðum, grimmum örlögum og hreinsun í lokin. Hreinsun fékk í fyrra níu bókmenntaverðlaun í Finnlandi eða öll verðlaunin sem hægt var að fá, þar á meðal hin mikils metnu Finlandia-verðlaun og einn- ig Runeberg-verðlaunin og varð þá fyrsta bók allra tíma til að hljóta þau bæði. Bókin hefur selst í meira en 120.000 eintökum í Finnlandi og þýðingarréttur á henni hefur verið seldur til rúmlega 20 landa. Pétur Ástvaldsson Anne B. Ragde og Neshov-þríleikurinn Norski rithöfundurinn Anne Birkefeldt Ragde er fædd í Hardanger 1957 og á að baki langan feril. Fyrsta skáldsaga hennar kom út árið 1986 en síðan hefur hún sent frá sér verk af ýmsu tagi; smásögur, barna- og unglingabækur og glæpasögur, auk ævisögu hinnar kunnu skáldkonu Sigrid Undset. Árið 2004 urðu tímamót hjá Anne B. Ragde. Það ár kom út skáldsagan Ber linerpoplene (ísl. Berlínar- aspirnar) sem átti eftir að verða ein mesta met- sölubók síðari ára í Noregi. Sagan hefur til þessa selst í yfir 250.000 eintökum þar í landi og hefur nú verið þýdd á meira en 20 tungumál. Fyrir verk- ið hlaut Ragde virt bókmenntaverðlaun, Riksmåls- forbundets litteraturpris, og norska þjóðin tók þessari sögu opnum örmum. Gagnrýnendur lof- uðu hana einróma. Tveimur árum síðar, 2006, kom út framhald af Berlínaröspunum, er nefnist Eremittkrepsene (ísl. Kuðungakrabbarnir). Sú bók naut einnig mikillar hylli og vann til verðlauna í Noregi. Ragde hafði þó ekki sagt skilið við sögupersónur sínar og þriðja og síðasta bókin um þær, Ligge i grønne enger (ísl. Á grænum grundum) kom síðan út 2007. Samanlagt hafa þessar þrjár bækur, sem núorðið eru jafnan nefndar Neshov-þríleikurinn, selst í meira en einni milljón eintaka í Noregi. Í landi þar sem íbúar eru ríflega fjórar milljónir má það teljast maka- TMM_3_2009.indd 55 8/21/09 11:45:32 AM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.