Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Side 59
TMM 2009 · 3 59
D av i d S e d a r i s
að hann er fæddur í New York-ríki í Bandaríkj-
unum 1956 en flutti ungur til smábæjarins Raleigh
í Norður-Karólínu. Þeir vita að hann á fjórar syst-
ur og einn bróður, að faðir hans er af grískum
ættum og að móðir hans lést úr krabbameini fyrir
aldur fram. Þeir vita líka að Sedaris er samkyn-
hneigður og taugaveiklaður stórreykingamaður
sem áður fyrr drakk og duflaði við eiturlyf meðan
hann flæktist um og vann hin ólíklegustu störf –
þeir vita að grísk föður amma hans þjáðist af
vindverkjum og hnoðaði brauðdeig á eldhúsgólf-
inu og að Sedaris sjálfur er svo hræddur við að
verða uppiskroppa með um ræðuefni þegar hann fer út að borða með kærast-
anum að hann skrifar oft niður punkta og tekur með. Með öðrum orðum er líf
hans sjálfs og fjölskyldunnar helsti efniviður hans og við fyrstu sýn virðist þar
ekkert heilagt.
Listamannsferill Sedaris hófst þegar hann daðraði við myndlist og leiklist á
yngri árum. Ekki reis frægðarsól hans hátt þar en hrakfarirnar hafa reynst
honum ágætur efniviður í pistla allar götur síðan. Hugsanlegur hápunktur
leiklistarferlisins var þegar hann lék jólaálf í stórmarkaði einn kaldan
desember mánuð en um þá lífsreynslu skrifaði hann smásöguna „SantaLand
Diaries“. Umskipti urðu í lífi Sedaris þegar útvarpsmaðurinn Ira Glass heyrði
hann lesa upphátt úr dagbók sinni á klúbbi í Chicago og árið 1992 flutti hann
áðurnefndar „SantaLand Diaries“ í bandaríska ríkisútvarpinu og sló í gegn. Í
framhaldi af því bauðst honum útgáfusamningur og árið 1994 kom út hans
fyrsta bók, Barrel Fever, sem var safn smásagna og pistla.
Í kjölfarið fylgdu Naked (1997), Holidays on Ice (1997), Me Talk Pretty One
Day (2000), Dress Your Family In Corduroy and Denim (2004) og When You Are
Engulfed In Flames sem kom út í fyrra. Allar bækurnar hafa orðið metsölubæk-
ur og aukið enn á hróður Sedaris. Þá hefur hann unnið talsvert með systur
sinni, leikkonunni og grínistanum Amy Sedaris, en saman hafa þau skrifað
nokkur leikrit undir nafninu The Talent Family.
Bækur Sedaris eru allar með svipuðu sniði – stuttir sjálfsævisögulegir pistl-
ar eða sögur og tónninn er alltaf gamansamur. Ekki væri þó sanngjarnt að
afgreiða Sedaris sem yfirborðskenndan grínista – oft er viðfangsefnið mjög
persónulegir og átakanlegir atburðir úr lífi hans sjálfs en stíllinn er hins vegar
litaður kómískri sýn svo hugsanleg tár lesenda stafa af hlátri fremur en gráti.
Þótt bækurnar séu keimlíkar má jafnan finna ákveðið þema innan hverrar
fyrir sig. Naked er nokkurs konar ævisaga – stiklað á stóru. Í Me Talk Pretty
One Day fjallar Sedaris um búferlaflutninga sína og Hughs, sambýlismanns
síns, til Frakklands en þar verður baráttan við franska tungu honum óþrjót-
andi uppspretta pistla. Holidays on Ice hverfist um hátíð ljóss og friðar og fyrsta
sagan þar er einmitt hin fræga „SantaLand Diaries“. Einhverjar raddir hafa
heyrst sem vilja að Sedaris setjist niður og skrifi Stóru Skáldsöguna en þeir eru
©
A
nn
e
Fi
sh
be
in
TMM_3_2009.indd 59 8/21/09 11:45:32 AM