Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Síða 75
M y n d i n a f J ó n a s i
TMM 2009 · 3 75
að líki á opin berum spítala, færi það í búning og reisi það upp og geri
mynd af líkinu. Að vísu ber að hafa í huga að Helgi Sigurðsson var við
nám í læknisfræði við háskólann í Kaup manna höfn og Friðriksspítali
var háskólasjúkrahús.
Í Listasafni Íslands eru varðveittar fjórar teikningar eftir Helga Sigurðs-
son af Jónasi Hallgrímssyni. Í fyrsta lagi er það blýantsteikning sú, sem
gerð var 27. maí 1845 og nefnd er hér að framan, myndin af líki Jónasar,
LÍ 151. Í öðru lagi er teikning á sama blaði og myndin af líki Jónasar. Það
er hálf vangamynd, trekvart-profil, merkt LÍ 152. Myndin er dregin
mjúk um dráttum, hlut föll eru rétt, fjar vídd eðlileg og persónu einkenni
einkar skýr, mjúk hærður, lítt skeggjaður og dökk brýnn, ennið allmikið,
réttnefj aður og heldur digur nefjaður, gran stæð ið vítt, vangarnir breiðir,
kinn beinin ekki eins há og tíðast er á Íslandi, munnurinn fallegur, var-
irnar mátu lega þykkvar, stór eygður og mó eygður, svo notuð séu orð
Konráðs úr lýsingunni sem nefnd var hér að framan.
Það sem vekur sér staka athygli eru döpur augu undir þungum augn-
lokum sem skjóta skökku við lýsingu Konráðs þegar hann segir að ekki
verði því lýst, hversu mikið fjör og hýra var í augum hans, þegar hann var
í góðu skapi, einkum ef hann ræddi um eitthvað, sem honum þótti unað-
samt um að tala. Hér er maður sem bíður dauða síns, hann vissi að hann
gæti ekki lifað. Hár og hnakki, eyra og háls eru ekki teiknuð að fullu
heldur aðeins dregin fáum dráttum og verður vikið að því hér á eftir.
Svartkrítarteikning Helga Sigurðsson-
ar. LÍ 153.
Ófullgerð blýantsteikning eftir Helga
Sigurðsson. LÍ 154.
TMM_3_2009.indd 75 8/21/09 11:45:34 AM