Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 138

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Page 138
138 TMM 2009 · 3 D ó m a r u m b æ k u r lák gamla í Skriðu, frá sér í misskilningi og hofmóði. Því verður hann kjörinn skotspónn þeirra sem vilja hefna þess sem áður hallaðist í samskiptum við amtmannaveldið, og sú mynd sem Kristmundur dregur upp af kollegum sínum í fræðimannastétt, Espólínfeðgum og Gísla Konráðssyni, er engin sér- stök glansmynd. En það er athyglisvert út af fyrir sig að helstu andstæðingar hins reglufasta og smámunasama amtmanns skuli vera tveir sagnaritarar sem ekki hafa hingað til þótt þeir ábyggilegustu í greininni. Eitt af því sem kemur á daginn í bók Kristmundar er að Grímur reynist ekki vera það forstokkaða íhald sem stundum hefur verið talið. Einn fárra embætt- ismanna er hann til dæmis hlynntur Fjölni og víkur meira að segja góðu að Fjölnismönnum, áttar sig á því að sá kraftur sem þeim ungu mönnum fylgdi gæti orðið landi og þjóð mikilvægur. Það var meira en gamall vinur hans og lagsbróðir, Bjarni Þorsteinsson amtmaður á Stapa, gat þolað og varð nokkur vík milli þeirra vina í kjölfarið. Bjarni, sem Grímur Thomsen kallaði Stapa- köttinn, lagði mikla fæð á Fjölni eftir að þar birtist harðorður ritdómur um bók hans um fólksfjölda og efnhagsmál á Íslandi. En það segir sitt um Grím að hann hlífði ekki vini sínum heldur sagði Bjarna kost og löst á bók hans; sagðist til dæmis alls ekki sammála þeirri meginniðurstöðu Bjarna að fólki mætti alls ekki fjölga á Íslandi því landið bæri það ekki. Hinn frægi systursonur Gríms amtmanns, nafni hans Thomsen, kemur raunar ekki mikið við sögu og má vel sakna hans. Saga hans liggur þó að mestu utanvið ramma bókarinnar auk þess sem Kristmundur hefur gert honum skil á öðrum vettvangi. Engu að síður fer ekki hjá því að lesandi hugleiði líkindi þeirra frænda. Á milli þeirra nafna virðist hafa verið eins konar friður á yfir- borðinu, þótt sú hugsun sé áleitin að þeir hafi ekki alveg átt skap saman. Ef til vill hafa þeir verið of líkir, stoltið og metnaðurinn hinn sami, þótt stórbokka- háttur yngra Gríms hafi trúlega slegið móðurbróður hans út. Þótt margþætt persónulýsing Gríms amtmanns sé meginþáttur bókarinnar, þá felur hún einnig í sér mjög mikilvæga lýsingu á umbrotatíma í íslenskri sögu, fyrri hluta 19. aldar í árdaga sjálfstæðisbaráttunnar. Bók Kristmundur ber vitaskuld þess merki að vera að nokkru málsvörn fyrir Grím. Það er eðlileg hneigð í ævisögu af þessu tagi, ekki síst þegar fjallað er um embættismann sem hefur mátt búa við nokkuð einhliða mynd í sögunni til þessa. En Kristmundur lokar ekki augunum fyrir göllum Gríms eða reynir að gylla mynd hans umfram efni, fjarri því. Hann gæðir hins vegar mynd Gríms fleiri blæbrigðum, og skýrir hin dramatísku örlög hans. Af þeim sökum mun þessi bók tilheyra lykilverkum um þennan merkilega tíma í Íslandssögunni. TMM_3_2009.indd 138 8/21/09 11:45:38 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.