Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Blaðsíða 19
S t a ð l e y s a n Í s l a n d o g m ý t a n u m o k k u r s j á l f
TMM 2009 · 4 19
bankastarfsemi, skyndilega á íslenskum bönkum að halda sem millilið milli
sparifjáreigenda sinna og lántakenda – til að ákveða hver fengi fjármagn og
hver ekki? Og ef Íslendingar hafa svona ótrúlega náttúrulega hæfileika í fjár-
málastarfsemi, hvers vegna földu þeir það svona vel í 1100 ár? Og síðast en ekki
síst, í landi þar sem allir þekkja alla gæti maður haldið, að þegar Stefán Álfsson
gekk inn í Landsbankann hefðu 10 manns sagt: Stefán, þú ert sjómaður! En þeir
gerðu það ekki.22
Á góðærisárunum urðu menn fjármálasérfræðingar á Íslandi án þess að
gerðar væru kröfur um sérstaka menntun á sviðinu. Meira að segja þeir
sem keyptu bankana höfðu enga reynslu af bankarekstri.23
Tóku menn hugsanlega svo vanhugsaðar ákvarðanir í nafni andlegrar
jafnaðarstefnu? Getur verið að efnahagshrunið á Íslandi megi rekja til
þess að hér búi alltof margir óbarðir biskupar, höfðingjadjarfir húskarl-
ar sem töldu að þeir ættu sér hvergi í heiminum jafnoka? Viðtal Örnu
Schram við „Spútnik Íslands“, athafnamanninn Hannes Smárason, sem
birtist í Króníkunni í febrúar 2007, gefur tilefni til slíkrar túlkunar, en
þar rekur Hannes árangur útrásarinnar til „víkingaeðlisins“ og reynslu-
leysis ungu kynslóðarinnar:
Ég held líka að við höfum aldrei áttað okkur á því hvað við erum í raun og veru
lítil. Við erum barnaleg að því leyti. Það hefði engum dottið í hug að gera þessa
hluti, sem við erum að gera, nema fólki sem veit engan veginn hvað það er að
fara út í.24
„For fools rush in where angels fear to tread“ orti enska skáldið Alex-
ander Pope í ljóðinu „An Essay on Criticism“.25 Hannesi Smárasyni til
varnar má ætla að hann hafi lagt aðra merkingu í yfirlýsingu sína en þá
sem nú blasir við í ljósi nýrra staðreynda. Rétt eins og svo margir spek-
ingar útrásaráranna er Hannes fórnarlamb þeirrar íróníu sem belgíski
bókmenntafræðingurinn Paul de Man kenndi við „mælskufræði for-
gengileikans“. Þá leiðir tíminn í ljós óþægilega merkingarauka sem
greina má í sakleysislegum fullyrðingum, viðbótarmerkingu sem áður
var mælendum og flestum áheyrendum hulin en blasir nú við og þurrk-
ar nánast út upphaflegu merkinguna.26
Í slíku ljósi verður Walbrook-ræða Ólafs Ragnars Grímssonar nú
aðeins skilin sem grátbrosleg gamansaga í þrettán liðum. Einn af les-
endum vefsíðu Egils Helgasonar hittir naglann á höfuðið þegar hann
segir ræðu Ólafs nákvæma greiningu á því sem fór úrskeiðis í íslensku
efnahagslífi, þvert á það sem forsetinn ætlaði sér: „ÓRG reyndist mjög
sannspár í ræðu sinni árið 2005. Allir ofangreindir liðir eru í raun skýr-
ing á hruninu.“27 Firringarplagg Viðskiptaráðs Íslands frá 2006 er texti
TMM_4_2009.indd 19 11/4/09 5:44:35 PM