Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Blaðsíða 57
I n n r i þ r o s k i , í m y n d o g s a m f é l a g s s á t t m á l i
TMM 2009 · 4 57
En það merkilega er að ákveðinn grunnur í hugsunarhætti Kristins,
sú hugmynd að hægt sé að finna stefnu og skipan sem endurspeglar trú,
vonir og áform allra, er alls ekki bundin við rómantíska kommúnista
eins og hann. Á meðan á hinu nýliðna góðæri okkar stóð gekk þessi hug-
mynd á vissan hátt í endurnýjun lífdaga.
Alveg eins og Kristinn E. Andrésson trúði því að hægt væri að leysa
innri mótsagnir og stuðla að innra frelsi þjóðarinnar trúðu sumir því að
hægt væri að finna innri ímynd hennar. Þessi innri ímynd átti, í stað þess
að svipta burtu öllum ugg og ógleði, að gera þjóðina samkeppnishæfari.
Þessi viðhorf komu skýrt fram í skýrslu um ímynd Íslands, sem gerð
var árið 2007 á vegum nefndar sem Svafa Grönfeldt stýrði en forsætis-
ráðherra skipaði. Þau komu reyndar ekki aðeins fram þar, þótt auðveld-
ast sé að lýsa þeim útfrá ímyndarskýrslunni – í góðærinu mikla ríkti
hugmynd um íslenska þjóð sem gekk ennþá lengra heldur en þjóðern-
isstefna lýðveldistímabilsins. Draumur margra Íslendinga þegar lýðveld-
ið var stofnað 1944 var að Íslendingar yrðu þjóð meðal þjóða – ríki sem
væri jafngilt og stæði jafnfætis öðrum stærri ríkjum. Draumurinn í
ímyndarskýrslunni var stærri. Hann gekk út á það að Ísland væri ekki
aðeins jafnt öðrum ríkjum heldur væru Íslendingar öðrum fremri, þeir
hefðu tiltekna eiginleika sem aðrar þjóðir skorti. Í ímyndarskýrslunni er
þetta orðað svo:
Kraftur og fjölbreytt fegurð íslenskrar náttúru er sögð endurspeglast í menn-
ingarlífi þjóðarinnar og skapa henni sérstöðu. Kraftmikil atvinnusköpun,
tjáningarfrelsi, öryggi og frelsi til athafna einkennir stjórnkerfi, samfélag og
atvinnuhætti. Óbeisluð náttúruöflin eiga sér líka hliðstæðu í agaleysi og oft og
tíðum djarfri og óútreiknanlegri hegðun Íslendinga. En þessa eiginleika ber ekki
að hræðast því þeir hafa gegnt veigamiklu hlutverki í lífsbaráttu þjóðarinnar.
Þeim ber að fagna og þá ber að nýta.
Nefndin leggur til að kjarninn í ímynd Íslands sé kraftur, frelsi og friður. Þetta
eru lykilorð sem farsælt er að byggja á jákvæða og sanna ímynd af landi og þjóð.
Til viðbótar við þennan kjarna er nauðsynlegt að draga fram það sérkenni
sem aðgreinir Ísland og Íslendinga frá öðrum þjóðum og aðrir geta ekki svo
auðveldlega gert tilkall til. Náttúrulegur kraftur er sérkenni Íslands. Hann greinir
land og þjóð frá öðrum og gefur Íslandi sérstöðu.7
Þótt hér sé vitnað í Ímyndarskýrsluna þá gerir hún í rauninni ekki
annað en að láta í ljós mjög algengar hugmyndir Íslendinga um sjálfa sig.
Þótt Kristinn E. Andrésson slái saman sjálfstæðisbaráttu og kommún-
isma í grein sinni lætur hann á sama hátt í ljós mjög algengar hugmynd-
ir um hvernig þjóðin lifi sínu lífi, þroskist og vitkist eins og um ein-
stakling væri að ræða, eða hugsanlega samhentan hóp einstaklinga.
TMM_4_2009.indd 57 11/4/09 5:44:38 PM