Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Blaðsíða 48
M a t t h í a s J o h a n n e s s e n
48 TMM 2009 · 4
hlýju. Og sem slíkar gegna þær ærnu hlutverki, þó að þær séu hvorki
listaverk né menningarsöguleg stórvirki. Það er varla nokkur dáinn fyrr
en hann hefur fengið sína minningargrein í Morgunblaðinu. Hinn látni
fær sína minningargrein á svipuðum forsendum og dáið fólk í fornöld
fékk með sér í gröfina vopn sín, hesta, skip eða hvaðeina. Minningar-
greinin er sem sagt einhvers konar veganesti; eða vegabréf. Það er yfir-
lýsing um að hinn látni er ekki einn á ferð. Hann er í slagtogi með
vinum sínum, kunningjum, ástvinum. Umvafinn vináttu eða kærleika.
Umvafinn hlýju sem nær út fyrir gröf og dauða.
Það er allt og sumt! …
Enn kvöldið
Vorum á fundi með fréttariturum utan af landi. Hafði gaman af
Ásmundi, fréttaritara okkar í Vestmannaeyjum. Hann er frændi Einars
Gíslasonar í Betel. Hann sagði okkur þá sögu af Einari að hann hefði
látið epli falla af loftinu handa krökkunum og þegar nóg var komið
hrópaði hann, Svona guð það er komið nóg! En eplunum rigndi áfram
og þá hrópaði hann aftur, Guð minn, það er komið nóg af eplum. En
ekki hættu eplin að hrynja af loftinu svo hann tók það til bragðs að kalla
hástöfum, Óskar bróðir, hættu, það er komið nóg af eplum! Þá loksins
hætti að rigna eplum …
5. nóvember 2000, sunnudagur
… Það hefur stundum verið dýrt spaug fyrir mig að hafa stjórnað Morg-
unblaðinu svona lengi, en það hefur líka verið skemmtilegt spaug eða
öllu heldur mikið ævintýri. Saga Morgunblaðsins er mikil saga. Hún er
öðrum þræði saga samtímans. Þetta starf mitt við Morgunblaðið hefur
bæði kostað mig vini og vinsældir. Það hefur einatt verið fórnarkostn-
aðurinn. En það er kannski ekkert við því að segja, þótt um mann hafi
gustað. Ég hef ekki fengið neitt á silfurbakka, hvorki veraldleg gæði né
metorð; né orðstír. Það sem mér hefur fallið í skaut hefur verið dýru
verði keypt. Ég hef tekið margt nærri mér, en ég hef ævinlega bitið á jaxl-
inn. Guð hefur ekki lagt á mig annað en það sem ég hef verið maður til
að axla. Ég hef verið þakklátur fyrir það. Ég hefði ekki staðizt raunir
Jobs …
12. nóvember 2000, sunnudagur
Bæði Morgunblaðið og DV birta kafla úr 3ja bindi ævisögu Steingríms
Hermannssonar um helgina. Í bókinni er vitnað í minnisblöð mín um
myndun ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Steingrímur var spurður um
TMM_4_2009.indd 48 11/5/09 10:12:59 AM