Tímarit Máls og menningar - 01.05.2011, Page 60
G u n n a r M á r H a u k s s o n
60 TMM 2011 · 2
Hér vantar þau orð sem Haukur og Jón Leifs fluttu á þýsku, en svo vill til,
að nýlega uppgötvaði Þorleifur Hauksson, bróðir minn, nokkrar hand
skrifaðar blaðsíður á þýsku í möppu með alls óskyldum pappírum. Þar
reyndust vera komin þau minningarorð sem pabbi flutti við bálförina.
Elisabet Göhlsdorf flutti ösku Jóhanns til Íslands og til Ólafsvíkur þar
sem askan var jarðsett. Öskukerið var flutt í grafreit móður Jóhanns,
Steinunnar Kristjánsdóttur, þegar hún lést árið 1944. Aðalsteina Sumar
liðadóttir hefur ásamt syni sínum, Agli Þórðarsyni, haldið minningu
Jóhanns á lofti í fæðingarbæ hans, Ólafsvík. Hún hefur látið gera skjöld
á húsið sem hann ólst upp í og reist veglegt minnismerki um Jóhann í
kirkjugarðinum.
Halldór Laxness segir frá því þegar hann heimsótti móður Jóhanns í
Ólafsvík:
Þetta var fjarska pasturslítil kona sem sat við lítinn glugga og lét lífið fara fram
hjá sína vild, þegjandi. Mér fanst ég vera að tala við hans „sáluðu móður“ sem
hann minnist á í kvæði sínu þó hún lifði son sinn um heilan áratug eða meira.
Hann vissi sem var að kvæðið ber í sér heila eilífð og mundi verða lært eftir að
bæði hann og móðir hans væru öll. Hún var eins og kona sem ég hefði þekt, en
væri laungu dáin og bæri nú fyrir mig í draumi: það var einhvernveginn einginn
snertipúnktur. Hún vissi ekki hver ég var og ég vissi í rauninni ekki heldur hver
hún var; en hún gaf mér kaffi og við horfðum hvort á annað – þegjandi. Það var
eins og ég væri kominn híngað að skoða einkennilegan fugl og fuglinn horfir
jafn forvitinn á móti. (Skáldatími, 1963, bls. 230–231)
Aðalsteina man eftir því þegar Halldór kom í Ólafsvík 1936. Hann hafi
verið flottur í tauinu í pokabuxum og sportsokkum. Honum hafi ekki
alls staðar verið tekið vel. Sums staðar hafi ekki verið lokið upp þó að
hann hafi barið að dyrum.
Til varð þessi vísa:
Halldór Kiljan Laxness leiður
lygasögur birta kann,
líkt og þyki honum heiður
helst að sverta náungann.
Verið getur að gamla konan hafi verið smituð af þessu neikvæða við
horfi og tekið Halldóri fálega þess vegna.
Ég heimsótti Leipzig í október 2010 og leitaði þá uppi Körnerstrasse
14 þar sem Jóhann Jónsson og Elisabet Göhlsdorf bjuggu – og Haukur
Þorleifsson a.m.k um tíma. Ingi Bogi Bogason skrifaði í Lesbók Morgun