Tímarit Máls og menningar - 01.05.2011, Síða 83
H o r f t ú t u m g l u g g a n n á K l o p s t o c k
TMM 2011 · 2 83
Um textann er fátt að segja en þó skal tekið fram að síðustu máls
greinarnar hljóða svo á þýsku: „Edler! hättest du deinen Vergötterung
in diesem Blicke gesehen, und möcht’ ich nun deinen so oft entweihten
Namen nie wieder nennen hören.“ Virðist þá ljóst að sá öðlingur sem
þarna er ávarpaður er einmitt skáldið sjálft, Klopstock, því Lotta hefur
einmitt tekið hann í guða tölu á þessari stundu.
Sama ár og Goethe skrifaði skáldsöguna um Werther hafði hann hitt
skáldið Friedrich Gottlieb Klopstock, þá fimmtugan að aldri og nýbúinn
að ljúka stórvirki ævi sinnar, „Messíasi“, sem síðar víkur svolítið að.
Goethe hafði reyndar við orð að skáldið liti út eins og diplómat og það
skilur maður ágætlega við að skoða myndir af Klopstock. Skýringin kann
sumpart að liggja í því að hann hafði verið hirðmaður Danakonungs í
næstum tvo áratugi þarna á undan.
Friedrich Gottlieb Klopstock fæddist í Quedlinburg í Saxlandi árið
1724 og var því réttum tuttugu árum eldri en Jón Þorláksson. Hann var
elsta barn vel stæðra foreldra sem komu honum fyrst í menntaskóla í
Quedlinburg en síðan í einn af kunnustu furstaskólunum, Schulpforta.
Á árunum 1740−1745 í þeim skóla virðist skáldskaparæð hans hafa
opnast, og þar kynntist hann fyrst við klassíkina en síðan við það verk
sem mestu varðaði fyrir feril hans, „Paradísarmissi“ Miltons. Af þeim
fundi spratt hið tröllaukna kvæði „Messías“ og segir sagan að Klopstock
hinn ungi hafi á einni nóttu gert áætlun um allt verkið − sem síðan tók
þrjátíu ár að framfylgja. Fyrsta misserið eftir Schulpforta nam Klop
stock guðfærði í Jena og síðan í Leipzig þar sem hann orti þrjá fyrstu
söngva Messíasarkviðu og birtust þeir í Bremer Beiträge árið 1748. Þar
með voru örlög ráðin.
Fyrstu söngvar Messíasarkviðu vöktu gífurlega athygli. Menn fóru
þegar að skrifa um hinn þýska Milton og danski sendiherrann í París,
reyndar af þýskum ættum, J.H.E. Bernstorff, hófst handa. Árið 1750
skrifar hann Klopstock og segist hafa vonir um að geta boðið honum
danskan styrk til að ljúka þessu stórvirki og strax 1. ágúst sama ár berst
skáldinu boð um að hann fái 400 ríkisdali á ári ef hann flytjist til Kaup
mannahafnar. Þetta var ágætis tilboð og Klopstock virðist hafa þegið
það glaður, og flyst til Hafnar í apríl 1751. Þar býr hann síðan og nýtur
danska hirðlífsins og mikilla vinsælda auk hækk aðra launa, allt fram til
þess að Struensee kom til valda og Friðrik fimmti var fallinn frá. Árið
1770 forðaði Klopstock sér til Þýskalands en hélt reyndar launum til
dauðadags og ekkja hans eftirlaunum.
Þetta var í skondinni Evrópu. Fyrirmyndin mikla að hirðlífinu,
Lúðvík fjórtándi, var að vísu fallinn frá en andi hans ríkjandi. Frakkar