Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Síða 73

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Síða 73
A r f l e i f ð m á r a n s TMM 2011 · 4 73 Samanburður við Andalúsíuskáldin Ezra Pound var sérfróður um franska trúbadora og þýðandi þeirra á ensku. Hann var sömu skoðunar og Nietzsche um mikilvægi þeirra: „Hver sú fræðilega úttekt á evrópskri ljóðagerð sem ekki hefst á þeirri próvensku er óheilbrigð.“ Hann taldi þessa skáldriddara hins vegar ekki „uppfinningamenn“ heldur sagði hann að Viljálmur trúbador hefði „komið með sönginn frá Spáni ásamt söngvurum og fiðlum“ (Ezra Pound, Spirit of Romance). Þess er þá að gæta að þegar Vilhjálmur þessi ólst upp var stærstur hluti núverandi Spánar undir márum. Rökin fyrir því að álykta eins og Pound eru mörg og sterk. Fyrst nefni ég landafræðina. Suður­Frakkland, svæði trúbadora, liggur að Spáni. Máraríkið átti sitt mesta menningarlega blómaskeið á 11. öld og ljóðagerð og sönglist sátu í hásæti. Því er athyglisvert að hin sérstaka bylting í ljóðagerð og sönglist í Suður­Frakklandi skuli hafa orðið á 12. öld, í beinu framhaldi af hliðstæðri gullöld máraríkisins. Samsvaranir í ljóðagerð sunnan og norðan Pýreneafjalla eru margar. Lítum á ljóðaform. Rétt eins og Andalúsíuskáld notuðu trúbadorar reglulega bragliði og skiptu ljóðum í erindi en það var nýnæmi á þeirra menningarsvæði. Og þeir brúkuðu alveg gegnumgangandi enda­ rím. Endarím var þekkt sem tilfallandi skreyting hjá Grikkjum og í latínukveðskap, hins vegar alveg óþekkt hjá germönum. Einu bók­ menntir sem fyrir 11. öld notuðu endarím sem almenna bragreglu voru þær arabísku. Þessar nýjungar ljóðaformsins tengjast svo örugglega atriði númer tvö sem er hin nánu tengsl ljóðs og lags, en erindi, regluleg hrynjandi og rím eru jú lykilþættir í söng. Ástarljóð trúbadora voru söngljóð, stundum sungin af skáldunum sjálfum en oftar af atvinnu­ eða farandsöngvurum, og sömu sögu er að segja frá Andalúsíu (sjá síðar). Í þriðja lagi gat menningarblöndunin í Andalúsíu af sér nýstárleg ástarljóð sem þróuðust frá hefðbundinni arabískri ljóðagerð, brúkuðu daglegt talmál í stað klassískrar arabísku og blönduðu einnig máli rómanskra Íbera saman við arabískuna. Þetta auðveldaði auðvitað allar farleiðir í norður. Félagslegur grunnur ástarbókmennta voru vaxandi hirðir, svo sem í Andalúsíu og Frakklandi, með tilheyrandi munaði og einnig bóklæsi. En félagslegar aðstæður eru aðeins ein hlið málsins. Önnur hlið er sú heimspekilega. Báðum megin Pýreneafjalla gat ástartískan af sér sérstaka ástarheimspeki sem sett var á bækur. Frægust frá Andalúsíu varð bókin Hálshringur turtildúfunnar eftir Ibn Hazam (d. 1064) og náskyldur boðskapur var seinna boðaður í franskri bók, Um ást (De
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.