Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Síða 119

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Síða 119
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2011 · 4 119 árið 2003, á uppgangsárum nýrrar aldar, var sögusvið það er Bergsveinn valdi sér ekki síður framandlegt en stíllinn. Saga um þorpslífið við hafið virtist í afger­ andi andstöðu við tískuvæðingu efna­ hagsbólunnar og efnishyggju bankaræð­ isins. Samhliða því voru efnistökin sér­ kennilega gamaldags. Gegnumsýrð þjóðlegum lýsingum á frumatvinnuveg­ unum; sjósókn og landbúnaði og óvenju kjarnyrtu tungutaki í bland við forvitni­ legar heimspekilegar vangaveltur. Aðalsöguhetjan, Halldór Benjamíns­ son, er ungur trillukarl sem varð eftir í sjávarplássi norður við ysta haf er móðir hans og systkini fluttu á brott í kjölfar þess að faðir hans dó í vinnuslysi. Hall­ dór er ósáttur við fólkið sitt og hefur orðið fyrir einelti í skóla. Sálarfrið finn­ ur hann hvergi nema hjá öldnum frænda sínum, trillukarlinum Gusa, sem hefur verið hans stoð og stytta þegar aðrir brugðust. Halldór er eftirtektar­ verð karlpersóna, karlmannlegur í lík­ amlegu atgervi og við sjósóknina; sönn hetja hafsins. En hann á sér líka aðra hlið sem brýst helst fram í landi og umgengni við ókunnuga, þá er hann feiminn, heftur og lítill í sér. Í verkinu eru víða pólitísk skot um togstreitu kvótakerfis og byggðastefnu. Trillukarlarnir hafa engan kvóta þrátt fyrir nálægðina við miðin og byggðirnar eru að leggjast í eyði. Reglur um sóknar­ mark setja sjálfstæðum fiskimönnum óþolandi skorður sem og getu þeirra til að sjá fyrir sér og skapa verðmæti. Hin þjóðlega sjálfsbjargarviðleitni alþýðunn­ ar er lítils virði í því samhengi sem stjórnvöld boða að sunnan. Þetta kemur glöggt fram er þingmaður svæðisins kemur í heimsókn, og sveitapresturinn veitist að honum; „Ykkur er svoleiðis skítsama þó allt fari í eyði hér, því það borgar sig ekki samkvæmt amríkuhag­ fræðinni ykkar að hafa manneskjur í sveitum, nema yfir hásumartímann þegar þið komið til að dást að fjöllunum og viljið fá keyptar pulsur. Þið viljið ekki hafa neina litla kalla að veiða fiska í fjörðum, það sem þið viljið er að plægja gervallt grunnsævið og ryksuga upp hvern einasta titt á verksmiðjutogurum fullum af vélmennum. Af því það er hagkvæmast samkvæmt hagfræðinni ykkar. Þið viljið enga helvítis menningu á landsbyggðinni, og enga menningu yfir höfuð. Það er löngu útreiknað að það borgar sig ekki að leyfa litlum körl­ um að lifa.“ (Bls. 42.) Þótt Handbók um hugarfar kúa fjalli um ungan mann úr borginni, menning­ arfræðinginn Gest, er sami undirtónn í samfélagsádeilu verksins og í Landslag er aldrei asnalegt. Hinn sprenglærði Gestur, sem er nýfluttur heim frá útlöndum með eiginkonu og dóttur, heldur uppi áþekkum málflutningi og sveitapresturinn og trillukarlarnir; „[…] fiskikvótar sem heilt byggðarlag hefur búið til og unnið fyrir eru seldir á einum eftirmiðdegi í Reykjavík í vasa nokkurra. Að drepa samfélagið – það er ekki bara sjálfsagt, það er ávísun á vel­ gengni, eins og það myndi heita hjá greinendum bankabatterísins, […]“ (Bls. 66.) Gestur er alinn upp af ömmu sinni og stjúpafa. Móðir hans, rétt eins og móðir hennar, amma Gests, varð ólétt óvart og alltof ung. Amman og stjúp­ afinn, kaldlyndir lögfræðingar bæði tvö, taka málið í sínar hendur og fá móður Gests úrskurðaða geðveika til að koma í veg fyrir að hún taki barnið með sér af heimilinu og afhjúpi um leið hræsnina sem þar ríkir. Eins og nafnið bendir til virðist Gestur því hvergi eiga raunveru­ lega heima, og öfugt við Halldór í fyrstu bók Bergsveins, síst úti í náttúrunni. Upphafssena Handbókar um hugarfar kúa gerist í gönguferð sem Gestur fer
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.