Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 124

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 124
D ó m a r u m b æ k u r 124 TMM 2011 · 4 andstæðum og sem slíkar eru þær bæði smættaðar niður og eins staðlaðar og kvenpersónur hafa orðið í gegnum tíð­ ina. Helga hefur áhuga á nýtísku fatnaði og lifnaðarháttum, en Unnur vinnur klæði, húsbúnað og það sem þarf til heimilis samkvæmt fornri handiðnaðar­ hefð bændastéttarinnar. Helga er frjó­ söm en Unnur ófrjósöm, Helga hverfur til borgarinnar en Unnur verður eftir í sveitinni. Helga er dæmigert tálkvendi því hún á frumkvæði að öllu á milli þeirra Bjarna en Unnur er dyggðug. Helga er gerandi en Unnur þolandi. Þótt Bergsveinn líki hinu kvenlega við landslagið á jarðbundinn hátt, fellur hann hreint ekki í þá gildru að sjá ein­ ungis samsvaranir á milli kvenna og dýra í þessu verki sínu. Helga er að vísu með „kýraugu“ og holdafar sem hver ær gæti verið stolt af, en svo allrar sann­ girni sé gætt líkir Bjarni sjálfum sér ekkert síður við hrútana en konunum við skepnurnar. Hann leggst meira að segja svo lágt að níðast á ársgamalli gimbur er girndin ber hann ofurliði. Þukl hans á henni minnir hann með ómótstæðilegum hætti á Helgu angandi af keytu á þeirra fyrsta ástarfundi. Á öðrum stundum þegar Bjarni getur ekki fundið ástríðum sínum útrás með Helgu sjálfri fróar hann sér í lækjum og laut­ um. Hann leggst niður í Helguþúfur, „með höfuðið á milli brjóstanna“ (bls. 28) og ímyndar sér að hann sé í faðmi hennar. Eins og hann orðar það sjálfur gerir hann „jörðina að kærustu“ sinni – oft og tíðum í bókstaflegum skilningi (bls. 80). Þá er iðulega lítil reisn yfir Bjarna sem karlmanni, t.d. þegar hann keyrir heim frá Helgu á traktornum eftir þeirra fyrsta ástarfund „sluprugur um innanverð lærin“ (bls. 36), þegar hann lýsir sig reiðubúinn til að „sladda á“ (bls. 52) henni að nýju og sömuleiðis er hann nefnir í framjáhlaupi að hann hafi „skotið ref skítandi“ (bls. 81) – svo fátt eitt sé nefnt. Kómík og hálfkæringur vokir þannig yfir öllum lýsingum eins og til að taka aðeins kúfinn af ofhlæði og tilfinningahita hins hagmælta sögu­ manns. Allt er þetta athæfi bréfritarans og aðalsöguhetjunnar sem sagt ýkt, sem ýtir undir þá tilfinningu að höfundur sé meðvitaður um þær hættur er kunna að leynast í því kynjapólistíska samhengi er verkið óneitanlega kallar fram. Því það er eins og áður var bent á stundum stutt í óþægilegar tengingar úr samtímanum. Lítill munur er t.d. á konunni sem „dráttarvél“ og margfrægum myndlík­ ingum Gilzeneggers um konur, þótt þær verði ekki tíundaðar nánar hér. * Þegar Bjarni bóndi fer að nálgast sam­ tímann og ellina í bréfi sínu, fer kjarni verksins að taka á sig mynd. Þarna hefst um leið fegursti þáttur þessarar stuttu bókar hvort heldur litið er til stíls eða efnistaka. En Bergsveini tekst víða veru­ lega vel upp við að kalla fram hnitmið­ aðar myndir á þessum síðum þar sem um er að ræða grundvöll verksins; þ.e.a.s. spurninguna um eðli ástarinnar eða kærleikans. Það er ljóst að Bjarna þótti ætíð vænt Unni eiginkonu sína þrátt fyrir þrána sem hann bar í brjósti til Helgu. Ástin til eiginkonunnar er þó eftir á að hyggja mótuð af þeirri stað­ reynd að viðhorf hennar til heimilis­ haldsins og hinnar þjóðlegu hefðar er mun líkara afstöðu Bjarna sjálfs en til að mynda lífsviðhorf Helgu. Helga þráir það helst sem nútíminn hefur fram að færa, hún hefur tískuvitund sem kemur frá útlöndum og yfirgefur hina þjóðlegri arfleifð bændalífsins án eftirsjár og lætur reyna á möguleika sína í borginni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.