Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 129

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 129
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2011 · 4 129 Guðjóns til myndlistarumræðunnar á landinu í hartnær tvo áratugi. Bókin um Guðjón er með svipuðu sniði og forverar hennar í ritröðinni, enda útlitshönnunin í höndum sömu aðila, þeirra Snæfríðar og Hildigunnar. Þær virðast hafa tekið nótís af gagnrýn­ um athugasemdum um fyrri bækur, því hér er myndum og upplýsingum mjög svo skipulega fyrir komið. Nær allar myndir eru heilsíðumyndir og birtast í tímaröð, milli þeirra eru síðan massífar textasíður með reglulegu millibili. Við þetta skynjar lesandinn framvinduna í myndlist þess sem hér um ræðir, án þess að þurfa að fletta fram og til baka í leit að ártölum og öðrum upplýsingum. Nú fer ég ekki dult með aðdáun mína á listamanninum G.K. Myndlist hans er margbrotið rannsóknarferli, í fyllsta skilningi orðsins, gegnumskotið djúpum tilfinningum og vitsmunalegri rökræðu um eðli og endimörk veruleikans, þ.á m. um tengsl hans og myndanna sem við gerum okkur af honum, eðli og veldi hlutanna sem eru staðgenglar hans, og ekki síst um þátt minninganna í mótun veruleikans. Í yfirlitsriti af þessu tagi gerir lesandinn tilkall til umfjöllunar sem tekur til allra þessara þátta, nýsist fyrir um rætur þeirra í listrænu upplagi, uppeldi og umhverfi listamannsins, áhrifavalda hans og hugmyndir, og dregur loks alla þræði saman í heild­ stæða greiningu á myndlist hans. Ólafur Gíslason fer aðra leið, nefni­ lega að beina sjónum sínum sérstaklega að fimm myndröðum listamannsins frá síðustu tuttugu árum, og gaumgæfa þær grannt út frá heimspekilegum forsend­ um, einkum og sérílagi merkingarfræði og fyrirbærafræði. Aðrir þættir í list­ sköpun Guðjóns sem Ólafur hefur minni áhuga á eru afgreiddir með nokkrum stuttaralegum málsgreinum. Margt er þar skarplega athugað, eins og höfundar er von og vísa, en hætt er við að hinn almenni lesandi verði orðinn nokkuð svo framlágur áður en lýkur langri útlistun höfundar á því hvernig útskorin tilbrigði Guðjóns um skó kall­ ast á við umfjöllun Martins Heidegger um málverkið Bóndaskóna eftir Van Gogh, gagnrýni Meyers Schapiro á þá umfjöllun og loks viðauka Jacques Der­ rida við umfjöllun beggja þessara heim­ spekinga. Sjónarhorn Ólafs á sum verk Guðjóns eru auk þess helst til afmörkuð, selektíf. Til að mynda setur hann á langan og heimspekiskotinn texta um málverk listamannsins sem nefnist Acne (2000), þar sem vísað er til útbrota á húð, en sneiðir framhjá náskyldri og viðamikilli röð vatnslitamynda sem nefnist Húð- mein (2004–5). Sennilega stafar áhuga­ leysi Ólafs um vatnslitamyndirnar af því að, öfugt við málverkið, má rekja þær beint til veikleika holdsins. Því er erfitt að flokka þær undir sértæka viðleitni til afbyggingar hefðbundinna listviðhorfa. Húðmeinin vísa ekki einasta í sjálf sig „og verknaðinn að gera slíkar myndir“, heldur í þjáningu og dauðleika manns­ ins á jörðu hér. Þannig stemma þau ekki við heimspekilegt upplegg Ólafs. Það er víðar í þessum texta sem les­ anda þykir sem myndlist Guðjóns sé sniðin að heimspekiviðhorfum Ólafs, en ekki öfugt. Ólafi er í mun að sjá í öllum verkum Guðjóns andóf gegn „fagur­ fræði eftirlíkingar“ og afnám alls sem hingað til hefur verið flokkað undir „inntak“. Um leið sé myndlist hans „eins og hástemmd krafa um nauðsyn og tilverurétt listarinnar“. Þessi tilveru­ réttur byggist síðan á „handverkinu handverksins vegna“ og myndmálinu „sem gildi í sjálfu sér“. Út af fyrir sig er röksemdafærsla Ólafs elegant og sam­ kvæm sjálfri sér. Engu að síður er eitt­ hvað bogið við þrætubókarlist sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.