Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 132

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 132
D ó m a r u m b æ k u r 132 TMM 2011 · 4 tungumáli tákna þar sem hver hlutur, stelling, viðmót og planta hefur sína meiningu.“ Vinni listamaðurinn nokk­ uð nákvæmlega í anda þessarar listar, eins og Kristín óneitanlega gerir, hlýtur hann að virða upprunalega táknmerk­ ingu þeirra hluta, stellinga og plantna sem hann notar í myndum sínum. Að minnsta kosti ímyndar maður sér það. Þótt bókin um Kristínu slái út af fyrir sig ekki á efasemdir mínar um grund­ vallarforsendur myndlistar hennar, þá er hún ágætlega samin og fallega útlít­ andi heimild um undirrót þessarar myndlistar, enda sjálfur Ámundi útlits­ hönnuðurinn. Ljósmynd á blaðsíðu 12 í bókinni segir raunar meira en mörg orð, en þar sést Kristín snerta hönd Jóhann­ esar Páls páfa á samkomu í Vatíkaninu árið 1987 og er sýnilega upptendruð af andlegri fullnægju. Í bókinni kemur fram að fjölskylda hennar var trúuð – móðurfjölskylda hennar tilheyrði sænskum sértrúarsöfnuði – og hún sjálf alin upp við guðsótta og góða siði, sem var sennilega ekki mjög algengt norður á Akureyri á áttunda áratug síðustu aldar. Löngun Kristínar til að finna trúarlífi sínu farveg í fígúratífu málverki er því fullkomlega skiljanleg. Þess vegna stóð hún frammi fyrir „allt öðrum við­ fangsefnum og vandamálum en flestir listamenn af hennar kynslóð“, eins og Páll Valsson tekur fram í viðtali sínu við listakonuna. Trú sannfæringu sinni ákvað Kristín að hverfa til hins kristilega og myndlist­ arlega upphafs og sækja um skólavist í fagurlistaskólanum í Flórens, íhalds­ sömum listaskóla sem eitt sinn upp­ fóstraði Íslendingana Jóhannes Jóhann­ esson, Erró, Gerði Helgadóttur og Kára Eiríksson. Í Flórens stúderaði hún einn­ ig gamalt handverk á borð við blaðgyll­ ingu á litlum handverksstofum í „hlið­ argötum og skúmaskotum“. Þó Kristín segi það ekki berum orðum er ljóst að fordæmi listmálarans Lorenzos Bonechi (1955–94), sem hún kynntist í Flórens, hafði töluverð áhrif á framvinduna í myndlist hennar. Eins og sést með því að fletta upp á verkum Bonechis á vefnum, tilheyrði hann hópi nýrómantískra málara – eins konar ný­Prerafaelíta – sem í krafti ívitnunarstefnu póstmódernismans höfðu tekið til við endurreisn hefða og viðfangsefna úr elstu málaralist á Ítalíu. Bonechi málar ýmist ofurfágaðar og innhverfar myndir af nútímalegu fólki við tímalausar aðstæður, eða myndir sem eru eins og framlengingar á fornum helgimyndum þeirra Giottos, Martinis og Duccios. Þar sem gamlar myndlistar­ hefðir eru sínálægar á Ítalíu – þar í landi skartar sérhver sveitakirkja listskreyt­ ingum frá mörgum tímabilum – reynd­ ist Bonechi ekki erfitt að brúa bilið milli nútíðar og þátíðar með þessum mynd­ um sínum. Vinsældir Bonechis urðu þess valdandi að hann var fenginn til að sýna fyrir hönd lands síns á Tvíæringn­ um í Feneyjum árið 1994, sama ár og hann lést, langt um aldur fram. Í myndlist sinni þarf Kristín óneitan­ lega að brúa öllu meira bil en Bonechi, því eins og áður hefur verið nefnt eru móttökuskilyrði fyrir helgimyndir allt önnur hér á landi en á Ítalíu. Öllum að óvörum, ekki síst listakonunni sjálfri, tóku Íslendingar íkonamyndum hennar tveim höndum strax árið 1994. Hvers konar myndir töldu viðskiptavinir Kristínar sig vera að kaupa: kaþólsk verk til heimatilbeiðslu, verk með óskil­ greindu „andlegu“ inntaki eða einfald­ lega gott og gyllt handverk til skrauts? Allt eru þetta réttmætar spurningar, og hefðu vissulega átt heima í þessari bók. Út frá þessum íkonum vinnur Kristín síðan þau verk sem hún er þekktust fyrir, „eggtemperaverk með tilvísun í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.