Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Qupperneq 43
S t j ö r n u f r æ ð i
TMM 2016 · 1 43
tiltekið verk í stærra samhengi. Lélegur gagnrýnandi fylgir þeirri formúlu að
endursegja söguþráð og tilkynna síðan hvort bókin hélt athygli hans eða ekki
(það er altso inntakið þó að niðurstöðurnar séu yfirleitt orðaðar öðruvísi). Ef
bækur fá að meðaltali 3.6 stjörnur – ríflega stjörnu ofar hinu raunverulega
meðaltali – er ljóst að hjarðhegðun og fúsk einkenna vinnubrögðin. Fyrir
Guðberg Bergsson eru þetta engin tíðindi. Árið 1982 skrifaði hann í Tímarit
Máls og menningar: „Gætið að hvernig dagblöðin eru uppfull af mið-
stéttarlegu spjalli, skrifuð fyrir fólk sem virðist í eilífu kaffihléi, þar sem
vaðallinn freyðir.“13
Samantekt mín náði ekki til ljósvaka- og netmiðla. Þar er gæðaeftir-
litið líklega minna, allavega ef marka má yfirlýsingar á auglýsingum um
bækur. Kannski ekki furða. Fimm stjörnur eru ekki síður auglýsing fyrir
gagnrýnandann sjálfan þegar þeim er skellt fram í leturstærð tvöhundruð.
Í blaðaauglýsingum fyrir síðustu jól voru dæmi um að stjörnur væru fyrir-
ferðarmeiri en titill bókar.14 Kostulegast var að sjá bækur skreyttar með
stjörnum um fyrri verk höfundar, líkt og þær væru andi sem fylgdi rithöf-
undi milli verka.15 Bókaauglýsingar í aðdraganda jóla bera þess skýr merki
hvernig stjörnugjafir hafa þróast frá aukaatriði í aðalatriði.
Til eru stórstirni sem skyggja á stjörnur.
Þegar starfsmenn Bókamarkaðsins í Perlunni opnuðu dyrnar einn
fimmtudag árið 2012 biðu tveir viðskiptavinir á húninum. Án þess að
bjóða góðan daginn sögðu þeir: Hvar er hann, þessi Stubbur?! Og Palli?!
Stubbur og Palli var einn í heiminum hafa verið fáanlegar á íslensku í 75
ár en aldrei tekið annan eins sölukipp. Yfirleitt seljast um 50–70 eintök á
Bókamarkaðnum. Þessa viku fóru hátt í fjögur hundruð eintök af hvorri
bók.16 Skýringin: Sjónvarpsþátturinn Kiljan og Kolbrún Bergþórsdóttir.
Ef stjörnur réðu öllu um bóksölu á Íslandi væru Gyrðir Elíasson og Jón
Kalman Stefánsson söluhæstu höfundar landsins. Bækur þeirra fá að meðal-
tali 4.75 stjörnur, samkvæmt samantekt. Á meðan fá metsöluhöfundarnir
Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir mjög misjafna dóma. Bækur
Arnaldar fá að meðaltali 3.65 stjörnur, örlítið hærra en bækur Yrsu, með
3.25 stjörnur (með fyrirvara um að einungis tuttugu stjörnugjafir liggja til
grundvallar þessum meðaltölum). Í raun má segja að ónæmastir fyrir ein-
stakri gagnrýni séu höfundar sem eru frægir á ákveðnu sviði, hvort sem það
er fyrir ævisagnaritun, glæpasögur, barnabækur, teiknimyndasögur eða líf-
stíls rit. Hugleikur Dagsson fær til dæmis að meðaltali litlar 2,8 stjörnur fyrir
bækur sínar en getur tæpast kvartað yfir slæmum viðtökum á þeim.
Eðli málsins samkvæmt vegur gagnrýni þyngst hjá yngri höfundum sem
þurfa mest á umfjöllun að halda. Eftir að Pressan, Helgarpósturinn og þorir-
þegar-aðrir-þegja DV lögðust til hinstu hvílu, hefur ekkert dagblað lagt í