Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Side 127

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Side 127
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2016 · 1 127 árum að þá fyrst hefði hann fundið sár- lega hversu mikill ofjarl sinn höfundur Grettis sögu hefði verið. Frásagnarháttur Einars býður honum sjálfum upp á mikið svigrúm til túlkun- ar á söguefninu og munar þar mest um hvað hann sýnir atburðina vel frá sjón- arhorni Gissurar – sem hefur vægast sagt átt erfitt uppdráttar í viðtökusögu Sturlungu; svikarinn sem drap skáld- mæringinn Snorra til að öðlast jarlstign og koma Íslandi undir Noregskonung „sem hirti frelsi vort“ eins og sungið er um á þorrablótunum. Enda þótt frásögn Sturlungu sé rómuð fyrir óhlutdrægni fer ekki hjá því að það hafi mikið að segja að lunginn úr því sagnasafni er settur saman af Sturlungunum sjálfum eða mönnum þeim tengdum – sem leiðir lesendur lævíslega frá því að geta nokk- urn tímann fengið samúð með Gissuri þótt Sturla sýni hörmungum hans eftir Flugumýrarbrennu augljósan áhuga og samúð. Um leið og Einar réttir hlut Gissurar og fær lesandann til að stilla sér upp við hlið hans dregur hann fram að Sturlungarnir, sem meiri ljómi hefur leikið um í sögubókum síðari alda, hafi ekki verið nein englabörn frelsis og sjálfstæðis. Líkt og Gissur reyndu þeir að sækja sér upphefð að utan og komast til valda og áhrifa hér á landi í nafni Noregskonungs. Umdeildara gæti sumum fundist að hlutur Eyjólfs ofsa er skýrður með geðhvarfasýki hans í bland við eggjanir konu sinnar – og Flugu- mýrarbrenna þá afleiðing mikillar upp- sveiflu og oflætis Eyjólfs. Það sem gerir bækur Einars svo læsi- legar sem raun ber vitni er ekki bara það góða vald sem hann hefur á hinni flóknu atburðarás, í bland við næma til- finningu fyrir gildi ættar- og vináttu- banda og ekki síst aldri þeirra persóna sem koma við sögu, heldur einnig sú leið að gera persónurnar sem líkastar okkar samtímamönnum. Þetta gerir Einar í krafti þeirrar hugmyndar að fólk hafi sáralítið breyst að upplagi frá því á steinöld. Því megi ætla að svipaðar til- finningar, hégómi og metnaður hafi bærst með þrettándu aldar Íslendingum og fólki á okkar dögum þó að lög og trúarbrögð og heimsmynd og hug- myndaheimur hafi þá verið með ólíkum hætti miðað við það sem nú er almenn- ast. Lykilaðferð við að ná þessum áhrif- um er að velta sér ekki upp úr því sem hefur verið ólíkt okkar tímum í daglegu umhverfi og lífsháttum, í eins konar uppfræðslustíl sögulegra skáldsagna, heldur segja frá öllu sem sjálfsögðum hlut – eins og það hefur verið í augum þeirra sem lifðu þá tíma þegar skinn- bækur voru nýmæli, ofbeldi stjórntæki og helvíti raunverulegt, hestar og skip voru samgöngutækin, húðir og vaðmál voru notuð í klæði, stéttskipting var klár, karlar og konur gegndu kynbundn- um hlutverkum og börn voru skipti- mynt í valdatafli. Um leið dregur Einar markvisst úr upphafningu tungumáls- ins – sem mörgum þykir þó óaðskiljan- legur hluti af heimi fornsagna. Því má búast við að lesendum bregði við þegar Þórður kakali segir förunaut sínum suður Sprengisand að „drulla sér heim“ þegar þeir sjá loks niður á grænar sveitir Suðurlands. Að leiðarlokum er vert að þakka fyrir þann mikla greiða sem Einar Kárason hefur gert okkur með því að leiða gamla og nýja lesendur inn í flókinn og heillandi sagnaheim Sturlungu og benda þar á helstu tinda og kennileiti. Þessi sagnaheimur hefur það sér til ágætis að þeir sem villast þar inn eru ólíklegir til að vilja nokkurn tíma finna leiðina út aftur. Einar bætir nýjum víddum við persónurnar, túlkar hlutskipti þeirra og viðhorf af innsæi, ómældri gamansemi og skáldlegu næmi sem fer á sérstakt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.