Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Side 131

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2016, Side 131
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2016 · 1 131 I Á tímum þegar „allt er leyfilegt“ þurfa listamenn sjálfir að „hafa á sér hemil“, svo að þeir finni hugsun sinni farveg og form. Hömlur eru líka ekki endilega réttnefni þegar kemur að þeim skorðum sem sköpun listamanna kunna að vera settar. Öðru nær, ekki síst þegar lista- mennirnir setja þær sjálfir. Þannig eign- uðumst við nokkur mikil meistaraverk þegar Lars von Trier, Thomas Vinter- berg og félagar þeirra í kvikmynda- bransanum settu sér Dogma-reglurnar. Og þá setti hinn frægi listamaður Matt- hew Barney, sér allskyns grimmar skorður við sköpun listaverkaseríunnar rómuðu, Drawing Restraint og hafði að fyrirmynd áskoranir og erfiðleika sem einkenna líf íþróttamanna, en sjálfur þótti hann á yngri árum líklegur til afreka á því sviði. Afreksíþróttir koma vissulega upp í hugann við lestur Geirmundar sögu heljarskinns. Bæði þegar ómennskur fræknleikur hálfsrekka og söguhetjunn- ar sjálfrar eru gaumgæfðar, en líka ef horft er til skrifanna sjálfra. Segja má að Bergsveinn Birgisson noti skylda aðferð og Barney og Dogma- menn til að koma sköpunarsafanum á hreyfingu í Geirmundarsögu. Hann fell- ir hana (næstum) fyllilega í form og stíl Íslendingasagna, og lætur ekki þar við sitja heldur líkja bókahönnuðirnir eftir hinni virðulegu grundvallarútgáfu Fornritafélagsins í umbroti, leturgerð, stafsetningu og framsetningu formála og neðanmálsgreina. Kjölurinn þó annar, engin hætta á að hún týnist í stássbókaskápnum. Bergsveinn hlífir okkur reyndar við langlokum um lesbrigði neðanmáls, enda skapar hann sögunni dramatíska varðveislusögu sem skilur aðeins eftir eitt óaðgengilegt handrit og eitt vafa- samt nútímaeftirrit þess. Sagan af afdrifum bókarinnar gegnir þegar upp er staðið lykilhlutverki í erindi hennar og tengist beint eldfimu efni hennar. Það gæti virst svolítið augljóst að velja sér þennan frásagnarhátt til að segja þessa sögu sem sækir heimildir sínar í fornaldarsögur, Landnámu og Sturlungu. Þó verður að huga að því að undanfarin ár og áratugi hafa íslenskir höfundar farið þveröfuga átt í ferðalög inn í þennan heim. Beitt aðferðum og hefðum nútímabókmenntanna til að sýna eitthvað nýtt, endurskoða og endur túlka. Úr efni Geirmundar sögu mætti til dæmis hugsa sér slíka bók um hlutskipti Leifs Loðhattarsonar, þræls- sonarins sem tekur sess konungsson- anna skrælingjalegu fyrstu æviárin, en þarf síðan að venja sig við hlutskipti hins ánauðuga þegar skiptin komast upp. Þarna leynist efni sem auðvelt er að ímynda sér kveikja í Ármanni Jakobs- syni, höfundi Glæsis og Einari Kárasyni með sín næmu eintöl fyrir hönd kvenna og smámenna í gerningaveðri Sturl- ungaaldar. Jafnvel Benedikt Erlingssyni eða Brynhildi Guðjónsdóttur. Um sagnaarfinn gildir það sama og gott kökuhlaðborð til sveita. Nóg til frammi. II En Bergsveinn sem sagt skoðar Geir- mund heljarskinn. Og hefur gert lengi. 2013 kom út í Noregi Den Svarte Vikin- gen, alþýðlegt fræðirit um rannsóknir Bergsveins og niðurstöður hvað varðar þennan óvenjulega landnámsmann. Fal- leg og efnismikil bók sem vel mætti hugsa sér að yrði þýdd og kæmi út hér líka. Jafnvel þótt við höfum fengið þessa áhugaverðu skáldsögu. Bergsveinn sækir efni hennar einkum í þrjú rit. Fornaldarsagan Hálfs saga og hálfsrekka segir frá forfeðrum Geir- mundar og lýkur með fæðingu hans og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.