Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Page 121
H u g v e k j a TMM 2017 · 1 121 búðarglugga sálarþynnkunnar en kannske ekki fullskrifaður enn. Og þá er aftur komið að símtalinu 11. janúar 1977. Mér er það gersamlega óskiljanlegt að nokkrum skuli geta dottið það í hug, eða tekið mark á því ef honum væri það sagt, að til væri franskur lykilróman um Geir- finnsmálið, sem væri þannig að rann- sóknardómari þyrfti að kynna sér hann, og ná tali af þeim sem væri ratvís á þess konar skrif, ef ekki væri eitthvað sem ýtti á. Hér var líkast til einhver ný „rann- sóknartilgáta“ á ferðinni, sem sé nýr reyf- ari, en af annarri grein bókmenntanna en hinn fyrri. En þessi nýja saga sprakk líka eins og fyrri reyfarinn, kannske var hinn ötuli sendiráðsritari sá oddhvassi títuprjónn sem stakk á hana gat. Þá var ekkert eftir nema sú hryggilega þrautalending að skella allri skuldinni á fyrstu sakborn- ingana, smákrimmana, sem upphaflega höfðu einkum verið vitni gegn stórlöxun- um, að Guðjóni viðbættum svo ekki væri hægt að halda því fram að rannsóknin hefði verið til einskis. Það ráð var tekið, sennilega nokkuð fljótt eftir ofangreint símtal, og frá því skýrt á blaðamanna- fundi 2. febrúar. En þar mátti kannske líka greina örlítið bergmál af seinni reyf- aranum, einhvers konar tregróf eftir hann andaðan. Eða eins og Jón Daníels- son tekur upp úr frétt Morgunblaðsins af fundinum: „Örn sagði að lokum, að inn í þetta spilaði að ungmennin væru öll róttæk í skoðunum, með ákveðnar skoðanir á ríku fólki og þau hafi viljað í og með að sitthvað yrði grafið upp um fortíð þeirra, sem að Klúbbnum standa.“ Nú má enginn skilja mál mitt svo, að það eigi að vera einhver breiðsíða gegn rannsóknarlögreglumönnunum. Þeir sömdu sínar sögur eins og allir gera, því það er háttur manna að setja jafnan saman sögur um hina ýmsu þætti sinnar eigin tilveru og annarra, þær eru ómiss- andi tæki til að festa hana í einhvern skiljanlegan ramma. Án þeirra væri lífið óskiljanlegur óskapnaður, kaos hjá Maó, og rynni hjá í glórulausu tilgangsleysi. Sögurnar eru óendanlega margar en mis- munandi frumlegar, mismunandi litríkar og mismunandi skáldlegar, og auk þess í margvíslegum tengslum við annan raun- veruleika. Það eina sem hægt væri að álasa rannsóknarlögreglumönnunum fyrir var það hve saga þeirra – fyrri sagan, sú eina sem nokkurn veginn er hægt að þekkja, – var skelfilega einfeldn- ingsleg, ófrumleg og klisjukennd og þess vegna í lausu lofti, hún var ekki annað en vesturheimsk uppsuða með öllu. Slík saga gat ekki komið neinu til leiðar nema illu einu. Þetta ætti að vera víti til varnaðar. Hér er í rauninni um menntun að ræða. Það þarf að kenna ungviðinu að handleika sögur á allan hátt, umgangast þær sem sprengiefni og rýna jafnframt í þær sem véfrétt sem þarf að ráða svo ekki fari illa. Til þess þarf að hafa fyrir því sem fjöl- breyttastar sögur, Postulasöguna, Banda- mannasögu, Ali Baba og hina fjörutíu ræningja, Robinson Krúsó, Reisubók Gúllívers, Fyrstu mennina á tunglinu, Birting, Sálina hans Jóns míns, Sindbað sæfara, og margt, margt fleira; kenna því hin ýmsu sagnamynstur, láta það bera þau saman og grafast fyrir um tengsl þeirra við þann raunveruleika samfélags- ins sem þau endurspegla á einn eða annan hátt. Það þarf að kenna því að gagnrýna sögur af öllu tagi, þar á meðal þær sögur sem menn segja sjálfum sér, svo það þekki muninn á þeim sögum sem hafa einhverja dýpri merkingu, þar sem orðin eru eins og flutningaskip, og hinum sem eru ekki annað en marklaus- ar klisjur og sökkva sögumanninum niður í kviksyndi. Það er stórt og mikil- vægt verkefni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.