Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 138

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 138
U m s a g n i r u m b æ k u r 138 TMM 2017 · 1 borga mönnum til að fara að sjá þær og heyra, „en menn eru ekki heimskingjar, þeir fara allir út í hléinu.“ Fleira heyrði ég í Frakklandi síðar, franskur gagnrýn- andi og trúboði Schönbergs sagði að Síbelíus væri „versta tónskáld í heimi“ og væri auðvelt að sýna fram á það með gildum rökum. Þýskur heimspekingur talaði um „hávaðasamt andleysi Brit- tens“. Ýmis önnur tónskáld voru hrein- lega ekki til, á þau var nær aldrei minnst. Jón Leifs var eitt af fórnarlömb- um þessarar hugsunar. Þessu öllu fylgdi ákveðin mynd af sögunni, lögð var áhersla á að það væri ekkert nýtt að menn kynnu ekki að meta nýjungar, tónskáld fyrri alda hefðu líka verið „misskilin“, menn hefðu ekki kunnað að meta verk þeirra fyrr en löngu eftir að þau voru komin undir græna torfu; á sínum tíma hefði Mózart verið jafn tor- skilinn og Webern nú, og menn hefðu ekki botnað upp né niður í síðustu kvart ettum Beethovens fyrr en á 20. öld. Sennilega þarf ekki að taka það fram að „dans- og dægurlög“, eins og þau voru kölluð í útvarpinu, voru alls ekki með í tónmyndinni, þau voru ekki annað en það sem nafnið gaf til kynna, dægurflugur – það heiti var líka notað –, semsé eitthvert tónasull til þess eins að hoppa og hía, og þornaði upp á einu dægri, eftir það úreltust þau og féllu í kolsvarta gleymsku, enginn gæti lengur haft gaman af þeim; því væri sæmst að vera ekki að leggja eyrun við slíkt, og engan veginn gott til afspurnar. Oft heyrðist sagt að þau væru ekki annað en „hávaði“. Á þessum tíma var allt einfalt, ef eitt- hvað tvennt var ólíkt hlaut annað að vera „æðra“ og hitt „óæðra“. Tónlistar- saga átti að fjalla um „æðri tónlist“ ein- göngu, – semsé „æðri tónlist“ á Vestur- löndum, utan þeirra var hún ekki til – þó kannske mætti nefna „þjóðlög“ í framhjáhlaupi, einkum ef eitthvert „æðra tónskáld“ hafði tekið þau upp í sín verk eða orðið fyrir áhrifum af þeim. Auk þess ætti helst að raða henni upp í eins konar línu, í anda þess sem sagt var við Beethoven á unga aldri: „Með þrot- lausri iðjusemi munið þér taka við anda Mózarts úr höndum Haydns“. Litið var svo á að sérhvert nýtt tónskáld sem kæmi fram á sviðið bætti einhverju við það sem fyrri tónskáld hefðu gert. Fyrsti píanókennari minn sagði að menn ættu að byrja á að spila Bach, hann fæli í sér allt sem á undan honum hefði farið, síðan ættu menn að leika „klassíska“ tónlist, semsé „Vínarklassíkina“, og eftir það rómantísku tónlistina. Ég vissi ekki hvort hann taldi rétt að menn færu miklu lengra, allavega var honum í nöp við Debussy og vildi ekki að nemendur hans léku „Tunglskin“. Ekki var þó laust við að þessi hugsun leiddi út í vissar ógöngur. Hver var „hápunktur“ tónlistarsögunnar? Í gam- alli tónlistarsögu sem ég las á unga aldri birtist þetta vandamál í spurningunni, hver var „æðstur“, Bach, Haydn, Mózart eða Beethoven? En á því vandamáli fann höfundurinn þó einfalda lausn, sem var þó sennilega ekki frá honum sjálfum komin: Bach var „æðstur“ í fúgunum, Haydn í kvartettunum, Mózart í óper- unum og Beethoven í symfóníunum. Þannig birtist æðri tónlist á vesturlönd- um sem ferhöfða risi með efri endann í himinblámanum, og eftir slíkum nótum var tónlistarsagan gjarnan skrifuð af íhaldsamari mönnum, hún gat þá endað á Brahms og Wagner með eftirmála um umdeild tónskáld í byrjun 20. aldar. Fyrir raðsinnaða nútímamenn var þetta þó ófullnægjandi, í þeirra augum þurfti að leggja meiri áherslu á framfarir en risinn ferhöfðaði gaf efni til. Boulez gerði sjálfum sér þann óleik að láta reita sig til reiði þegar að honum var vegið í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.