Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Side 10

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Side 10
8 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR ágætlega á örfoka sandlendi, ef séð er fyrir nægum áburði. Frærækt af sandvingli getur farið fram, eins og lýst hefur verið hér að framan við ræktun túnvingulsfræs. Mér hefur virzt, að sandvingullinn sé nægjusamari varðandi vaxtarskilyrði en túnvingull. Fræ sandving- ulsins er líkt að gerð og túnvingulsins, en grágrænt og hært. Þyngd og grómagn svip- ar mjög til túnvingulsins og þroskast held- ur fyrr. Grómagn og fræþyngd er ekki lakari en af túnvingli, en þessu er þó iarið eins og annarra grastegunda, að grómagnið fer mjög eftir því, hvenær sumarsins þroski fræsins verður, og svo eftir því, hvað fljótt fræið þornar. Frostnætur í ágúst virðast. draga úr spírun fræsins, ef þær koma snemma í ágúst, og gildir sú staðreynd fyrir allar grastegundir. Flarðvingull (Festuca durisculum) Nokkrar rannsóknir hafa farið fram á fræi þessa erlenda vinguls, sem er mjög lík- ur túnvinglinum, en harðari viðkomu og nteð grófgerðara heyi en túnvingull. Fræ það, sem hér um ræðir, var ræktað í Gróðr- arstöðinni í Reykjavík og á Sámsstöðum á árunum 1922—1932 og var af dönskum upp- runa. Fræið þroskaðist venjulega síðast í ágúst. Það er heldur minna en túnvinguls- fræ, en líkt að lögun og útliti. Aldrei fékkst góð spírun þrátt fyrir þurrkun fræsins við góð skilyrði. Flarðvingullinn tekur ekki fram tún- vinglinum að neinu leyti og er því ekki eftirsóknarverður fyrir íslenzka túnrækt. Flokkun rannsóknanna er hér eins og fyrr er greint í tveimur atriðum: I. betra fræ og II. lakara fræ. Hávingull (Festuca pratensis) Reyndir hafa verið margir stofnar af þess- ari tegund til fræræktar. Bæði snemmvaxn- ir og síðvaxnir stofnar hafa verið reyndir til túnræktar og fræþroska. Yfirleitt reynist betra fræ af snemmþroska hávingulsstofn- um, en þeir gefa heldur minni grasvöxt við túnrækt en sænskir, síðvaxnir stofnar. Meðalsnemmvaxnir stofnar frá Svalöv og Ötoftegárd hafa oft gefið gott fræ eftir meðalsumar og frætekja af ha orðið 600— 700 kg hreinsað fræ af ha. Við hreinræktun hávinguls til heyöflun- ar hefur hann haldið sér í 4—5 ár allsráð- andi, en úr því gengið úr sér, einkum á mýrarjörð. Við frærækt er bezt að raðsá 7—8 kg á ha og hafa bil rnilli raða 50—60 cm. Áburð þarf ríflega það, sem greint er hér að fram- an fyrir túnvingul. Þroskun verður oftast síðari hluta ágúst og heldur fyrr á sandjörð, en þar hefur fengizt lífmesta og bezta fræið. Niðurstöður í töflu IV sýna ekki miklu lakari árangur en fékkst við athugun á tún- vingulsfræi, bæði í I. og II. flokki gró- magnstilrauna. Fræþyngdin er ekki heldur minni að jafnaði en á erlendu fræi, og gæði fræsins geta orðið eins mikil. Það sýnir mesta spírun þess í I. flokki. Vallarsveifgras (Poa pratensis) Vallarsveifgras var ræktað fyrstu ár til- raunastöðvarinnar á Sámsstöðum, og gekk sú frærækt ekki alltaf vel vegna þess, hve grasið vildi oft leggjast í legu, og svo vegna gisstæðra puntstráa. Varð uppskera frá 200 til 400 kg á ha. Þessi tegund þroskar fræ 5.—20. ágúst eftir árferði. Bezt er að rækta fræið á sandjörð. Veruleg frætekja fæst vart af vallarsveifgrasi fyrr en á þriðja ári frá sáningu. Árið eftir sáningu fræsins getur það gefið gott hey, en þörf er á að slá það ekki síðar en eftir miðjan júlí. Útsæðismagn til fræræktar mætti vera um 20 kg á ha, og bezt er að sá því með skjólsáði, svo að landið gefi af sér upp- skeru sáðár grasfræsins. Áburður á sancl-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.