Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Qupperneq 106
104 ÍSLENZKAR LANDBUNAÐARRANNSÓKNIR
'J’AFLA 2 - TABLE 2
Kal misgamalla túna eltir þrenns konar frystingu.
Mælt í hundraðshlutum af fyrri gróðri
Percentage of injury after different freezing treatments and
for different age groups of sod
Sáðár Seeding year Kassi nr. Box no. Meðaltal Average
1 2 3 4
1964 (+) o 50 50 33
1965 ( + ) 67 l 80 100 82
1966 (+) o 1 67 67 45
Meðaltal Average (+) 22 1 66 72
seinna í þeim. Niðurstöður mats sjást af
töflu 2 og urðu sent hér segir:
Misgömul tún kól mismikið. Varð út-
koma söm við alla meðferð og á þá lund,
að svörður af túni frá 1965 kól mest, en
lítill rnunur var á túnum frá 1964 og
1966, þó var svörður frá 1964 minnst kal-
inn. Við mismunandi meðferð kom í Ijós,
að langminnst var kalið elitr 22 daga sam-
fellda frystingu (kassar nr. 2), en miklu
meira kól við 6 —|— 11 og 11 —(— 6 daga fryst-
ingu (kassar nr. 3 og 4). Grös í samanburð-
arkössum, er stóðu úti (kassar nr. I), virt-
ust einnig nokkuð kalin, en vera kann, að
grösin hafi fremur þjáðst af þurrki um
vorið en kulda og drepizt af þeim sökum.
ÁLYKTUNARORÐ
Til þess að geta leitt óyggjandi rök að
því, hvort þoltap túngrasanna verður á
fyrsta ári eða smám saman með árunum,
hefði einnig þurft að reyna grös, er sáð
var til 1967, þ. e. tún á fyrsta ári. Þess var
ekki kostur. Ekki verður séð, að elztu grös-
in (sáð 1964) kali meira en hin yngri, og
erfitt er að gera sér grein fyrir, hvers vegna
grös frá 1965 kól meira en bæði þau, sem
eldri voru og yngri. Þar sem ekki verður
sýnt fram á þoltap frá ári til árs, hníga
rökin fremur að því, að lífeðlisfræðilegar
breytingar grasanna frá fyrsta til annars
árs séu aðalorsökin fyrir þolmuni nýrækta
og eldri túna. Þó er vafasamt að draga
þessa ályktun með öryggi af þessum niður-
stöðum einum.
Öllu Ijósara er, að 22 daga samfelkl fryst-
ing hefur skaðað grösin miklu minna en
tvöföld frysting með þiðnun á milli. Er
seinni frystingin greinilega skaðvaldurinn.
Þol grasanna hverfur við þiðnunina, og
seinni frystingin veldur kalinu. Eðlilegt
hefði verið, að í kassa nr. 3 hefði kalið
meira en í kassa nr. 4, þar sem seinni
frystingin var þar lengri. Ekki kom fram
mikill munur á þessunt tveimur liðum. Ef
til vill hefur meðferðin verið of harkaleg