Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Blaðsíða 93
AFURÐIR ÞUNGRA OG LÉTTRA ÁA 91
H. Fallþungi lamba, kg, leiðrétt lyrir aldri
Dressed carcass weight of lambs, corrected for • age
A-flokkur B-flokkur Mismunur
Group A Group B Difference
A-B
Tvílembingshrútar Twins $ 14.38 14.24 0.14
Tvílembingsgimbrar Twins 2 13.92 13.76 0.16
Einlembingshrútar Singles $ 18.39 18.56 -t-0.17
Einlembingsgimbrar Singles 2 18.11 16.76 1.35
I. Dilkakjöt, kg, leiðrétt fyrir aldri og kyni
Dressed lamb production, kg, corrected for age and sex
A-flokkur B-flokkur Mismunur
Group A Group B Difference
A-B
Eftir tvílembu Per ewe rearing twins 28.34 28.15 0.19
Eftir einlembu Per ewe rearing single 18.26 17.67 0.59
Eftir á með lambi Per ewe rearing lamb 25.17 23.80 1.37
meira aldar á íyrri hluta meðgöngutímans,
frá fengitímalokum til marzloka, þann vet-
ur en hina veturna. Hin mikla kjarnfóður-
gjöf veturna 1966—’67 og 1967—’68, saman-
borið við veturinn 1965—’66, stafaði af því,
að spara þurfti hey þá vetur, en veturinn
1965—’66 voru næg hey og kjarnfóður því
aðeins notað til fengieldis og til að bata
ærnar síðustu vikur meðgöngutímans.
Mismunur á fóðureyðslu í A- og B-flokki
var því nær hinn sami alla veturna, þótt
heildarfóðureyðsla væri meiri í báðum
flokkum veturinn 1965—’66 (sjá viðauka-
töflur I til III, B-lið).
Eins og tafla 1 B sýnir, var meðalfóður-
eyðsla handa á frá 1. desember til 1. maí
138.5 FE í A-flokki, en 112.1 FE í B-flokki.
Mismunurinn 26.4 FE. Fengu því þungu
ærnar 23.5% meira fóður en þær léttu.
Tafla 1 A sýnir, að þungu ærnar léttust
frá 1. október til 4. nóvember um 5.2 kg,
en þær léttu aðeins 2.2 kg. Sýnir þetta, að
hinn sölnaði úthagi í október nægir verr
til viðhalds þungu ánum en þeim léttu.
Frá 4. nóvember til 1. mai þyngdust ærnar
í A-flokki um 10.8 kg, en í B-flokki 10.2 kg.
Sýnir þetta, að fóðrunin yfir veturinn í
báðum flokkum var mjög svipuð og ætlazt
var til, þótt ekki næðist að fullu upp það,
sem þungu ærnar léttust meira en þær léttu
í október.
Afnrðir
Tafla 1 C sýnir meðalfrjósemi ánna öll til-
raunaárin. Munur á meðalfrjósemi flokk-
anna er litill og nemur 0.09 lambi, fæddu
eftir á, þungu ánum í vil. Þegar litið
er á viðaukatöflur I til III, kemur í ljós,
að fyrsta árið eru 44 af þungu ánum tví-
og þrílembdar, en aðeins 32 af léttu ánum.
Þessi munur er raunhæfur í 98% tilfella,
en tvö siðari árin er því nær enginn og
óraunhæfur munur á frjósemi flokkanna.
Að meðaltali öll árin komu til nytja 0.10
lambi fleira eftir á í A-flokki en í B-flokki.
Tafla 1 D sýnir meðalþunga lambanna
við fæðingu, sér fyrir hrúta og gimbrar,