Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Page 27
ELDI KÁLFA Á UNDANRENNU OG TÓLG 25
meðaltali (3—12 daga), þegar þeir voru
teknir í tilraunina og farið var að gefa t-
mjöl saman við nýmjólkina. Allir kálfarnir
voru undan fullorðnum kúm nema tveir,
sem voru undan fyrstakálfskvígum (nr. 1 og
nr. 5). Faðerni kálfanna var ekki skráð.
Kálfarnir voru fæddir á tímabilinu frá 31.
marz til 21. apríl. Olli það nokkrum erfið-
leikum, að kálfarnir voru svo misgamlir,
sérstaklega vegna þess, að þeir gengu fimm
og fimm saman í stíum.
Kdlfahúsið og heilsufar kálfanna
Kálfarnir voru aldir í kálfafjósinu í Laug-
ardælum. Rimlagólf var í húsinu, og því
skipt niður í stíur, þar sem kálfarnir gengu
lausir. Um sama leyti og tilraunin hófst
var verið að safna saman nýfæddum kvíg-
um til afkvæmarannsókna í Laugardælum.
í kálfafjósinu voru því um 30 ungkálfar
auk tilraunakálfanna. Flestir þessara kálfa
veiktust af skitu 5—10 daga gamlir, þó mis-
jafnlega mikið.
Kálfar nr. 4, 5, 7, 11, og 12 veiktust sára-
lítið eða alls ekki á þessum aldri, og mun
það vafalaust vera að miklu leyti því að
þakka, að farið var að gefa þeim t-mjöl
mjög ungum, 3—4 daga gömlum.
Kálfar nr. 1, 2, 3 og 10 voru allir orðnir
veikir, áður en farið var að gefa þeim t-
mjölið, og flestum batnaði fljótt aftur. Af
t-mjölskálfunum veiktist kálfur nr. 8 lang-
mest og var ekki orðinn heilbrigður fyrr
en um 20 daga gamall. Á meðan hann var
sjúkur, varð lengi vel að láta hann drekka
af flösku, og tókst þá ekki að venja hann
á að drekka úr fötu aftur, svo að gefa varð
honum úr flösku allan tilraunatímann.
Samanburðarkálfarnir nr. 6 og 9 veiktust
báðir allilla og þó kálfur nr. 9 miklu verr.
Þau niistök urðu í byrjun júní, að t-
mjölskálfarnir fengu ekkert fóður í einn
sólarhring. Við það veiktust þeir allir, og
voru flestir heilsulitlir upp frá því.
Fóðrið
Fóðrið, senr notað var í tilraun þessari, var
blanda af undanrennudufti, fínúðaðri
(emulgeraðri) tólg, að viðbættum vítamín-
um, steinefnum, snefilefnum og fúkalyf jum.
Blandan, sem fyrst var notuð (til 20.
maí), var framleidd á þann hátt, að fvrst
var fínúðaðri tólg hrært út í hálfseyddri
(konsentreraðri) undanrennu, er síðan var
þurrkuð í úðaþurrkara þannig, að vatn
duftsins var aðeins 2% (framleiðsluaðferð
I). Þegar búið var að gefa þessa blöndu
upp, var notuð blanda, sem ekki var úða-
þurrkuð, heldur var henni dreift á gólf og
látin þorna þannig í nokkra daga (fram-
leiðsluaðferð II). f þeirri blöndu urðu um
12% af vatni. Við uppgjör er miðað við
2% vatn.
Fóðurgildi blöndunnar var fundið þann-
ig, að reiknað var með, að 1 kg af þurr-
efni í undanrennu gæfi 1.33 fe. og 344 gr
hrápróteín og 1 kg af dýrafitu 3.21 fe.
Eitt kg al 100% þurru t-mjöli gefur því
1.68 fe. og 260 gr hrápróteín. Ef miðað er
við 2% vatnsmagn í mjölinu, verður fóður-
gildi í 1 kg 1.65 fe. og 255 gr hrápóteín.
í uppgjöri er reiknað með 2% vatnsmagni
í t-mjölinu.
Um samsetningu og framleiðsluaðferðir
fóðursins vísast til skýrslu Rannsóknastofn-
unar iðnaðarins, sem annaðist framleiðsln
þess.
Fóður samanburðarkálfanna nr. 6 og 9
var ekki mælt nákvæmlega. Reynt var að
spara nýmjólk og í staðinn geiið töluvert
af undanrennudufti, allt að 800—900 gr á
dag. Hey og kjarnfóður fengu þessir kálf-
ar að vild.
NIÐURSTÖÐUR
Fóðuráætlun og
raunveruleg fóðurneyzla
Við fóðrun kálfanna skyldi farið sem mest
eftir lyst kálfanna, þannig að þeir fengju