Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Page 41
TILRAUNIR MEÐ MJÓLKURKÝR 39
víð Davíðsson prófessor, Páll Agnar Pálsson
yfirdýralæknir og Stefán Aðalsteinsson sér-
fræðingur.
Kristinn Jónsson og Jóhannes Eiríksson
sáu um daglega framkvæmd tilraunanna.
Efnagreiningar voru gerðar á búnaðardeild
Atvinnudeildar Háskólans. Fitumælingar á
mjólk voru gerðar í Mjólkurbúi Flóa-
manna. Blóðrannsóknir voru gerðar á
Rannsóknastofu Landspítalans. Dr. Sturla
Friðriksson framkvæmdi flokkun á gróður-
svæðum á túni og úthaga sumarið 1960.
Tilraunaráð búfjárræktar bar kostnað af
framkvæmd tilraunanna.
Tilraunirnar, sem lýst er hér á eltir,
eru sumpart framhakl á tilraunum þeim,
sem gerðar voru árin 1954—1957. Þannig
eru rannsökuð áhrif kjarnfóðurgjafar með
túnbeit öll sumurin. Önnur atriði eru ný.
svo sem rannsókn á áhrifum yfirbreiðslna
á nythæð og rannsókn á áhrifum fóðurkáls
á nythæð. Finnig eru rannsóknirnar sum-
arið 1960 á efnasamsetningu úthagagróð-
ursins nýmæli.
Enn fremur var tekinn upp nýr þáttur í
þessum rannsóknum sumurin 1960 og 1961,
í samvinnu við Davíð Davíðsson prófessor,
en þau sumur voru rannsökuð áhrif tún-
og úthagabeitar, kjarnfóðurgjafar og mis-
munandi tegunda af fóðursöltum á heil-
brigði kúnna. Þau sumur voru tekin blóð-
sýni úr kúnum til rannsóknar með ákveðnu
millibili. Niðurstöðurnar af blóðrannsókn-
unum verða birtar annars staðar.
Við stærðfræðilegt mat á niðurstöðum
tilraunanna hefur einkum verið stuðzt við
bók C. H. Gouldens (1957).
I. KAFLI
Beitartilraunir sumarið 1958
RANNSÓKNAREFNI
OG AÐFERÐIR
Tilraunaverkefni og
skipting Itúnna i flokka
Sumarið 1958 voru gerðar þrjár beitartil-
raunir í Laugardælum. Fyrsta tilraunin, nr.
1, stóð frá 10. júní til 22. júlí, hin næsta,
nr. 2, frá 23. júlí til 28. ágúst og hin þriðja,
nr. 3, frá 13. september til 18. október.
í hverri tilraun voru 24 kýr. Var þeim
í byrjun hverrar tilraunar skipt í fjóra
jafna flokka eftir sömu reglum og árið
1957 (Kristinn Jónsson og Stefán Aðal-
steinsson, 1961). í tilraun nr. 2 voru not-
aðar allmargar kýr, sem áður höfðu verið
í tilraun nr. 1, og í tilraun nr. 3 nokkrar
kýr, sem höfðu verið í tilraunum nr. 1 og
2, annarri eða báðum.
í tilraun nr. 1 gengu kýrnar í flokkun-
um A I og A II á túni allan sólarhringinn,
og fengu kýrnar í flokki A I ekkert kjarn-
fóður með beitinni nema fyrstu viku til-
raunaskeiðsins, en þá fengu þær hver fyrir
sig 2 kg af kjarnfóðri á dag.
Kýrnar í flokki AII fengu kjarnfóður
frá byrjun tilraunar eftir nythæð, sjá
töflu 1.
Kýrnar í flokkunum B I og B II gengu
utan túns á daginn, en á túni á nóttunni
milli mjalta, og fengu kýrnar í flokki B I
ekkert kjarnfóður nema fyrstu vikuna 2 kg
á kú á dag, en kýrnar í flokki B II fengu
kjarnfóður eftir nythæð, sjá töflu 1.
Öllum kúnum í tilrauninni var gefið hey
á kvöldin fyrir mjaltir fyrstu viku tilrauna-
skeiðsins.
Kjarnfóðrið var kúafóðurblanda SÍS. Af